Reglulegar segðir í föllum
Úr OpenOffice.is
Nokkur föll í Calc geta notað reglulegar segðir (regular expressions): SUMIF, COUNTIF, MATCH, SEARCH, LOOKUP, HLOOKUP, VLOOKUP, DCOUNT, DCOUNTA, DSUM, DPRODUCT, DMAX, DMIN, DAVERAGE, DSTDEV, DSTDEVP, DVAR, DVARP, DGET.
Virkja þarf notkun segða í föllum í Tools > Options > OpenOffice.org Calc > Calculate (Mynd 1).
Sem dæmi þá telur =COUNTIF(A1:A6;"r.d") reiti sem innihalda orðin RED og ROD ef segðir eru virkar.
Ef möguleikinn Search criteria = and <> must apply to whole cells er ekki valinn þá finnur það einnig FRED, BRIDE og RIDGE. Ef sá möguleiki er hinsvegar valinn þá er hægt að fá fram sömu virkni með stjörnum : =COUNTIF(A1:A6;".*r.d.*").
Reglulegar segðir í föllum gera ekki greinarmun á hástöfum og lágstöfum. Reglulegar segðir virka ekki í einföldum samanburði, til dæmis skilar samanburðurinn A1="r.d" RANGT nema að í reitnum A1 standi nákvæmlega Err púnktur dé. Ef þú vilt prófa reglulegar segðir í föllum er gott að nota COUNTIF fallið. Það skilar 1 eða 0 eftir því hvort það finnur það sem beðið erum eða ekki . Þessi 0 og 1 kallast líka RANGT og RÉTT. Þannig að fall eins og =IF(COUNTIF(A1; "r.d");"Húrra";"Búhú") skilar „Húrra“ ef COUNTIF fallið finnur eitthvað en „Búhú“ ef ekkert finnst.
Ef reglulegar segðir eru virkar og notaðar í föllum þarf að setja öfugt skástrik fyrir framan öll sérstök tákn sem notast í segðirnar (Svo sem tvípunkta og sviga). Ef stillingin er tekin af síðar hætta þessi föll að virka nema þetta sé lagað aftur.

