Punktalistar
Úr OpenOffice.is
Punktalistar eru skemmtileg fyrirbæri sem nota má til að koma hnotskurnarupplýsingum til nemenda og spara þannig bæði pappír og tíma. Það er auðvelt að búa þá til og það eina sem maður gerir er að vélrita upp það sem á að koma í listann og ýta á ENTER lykilinn á lyklaborðinu á milli atriða:
Til að setja punktana framaná er nóg að ljóma þennan texta og velja punkta með punktahnappinum:
Þá verður listinn svona:
En nú er ekki víst að allir vilji nota einfalda punkta eða þá uppsetningu sem er sjálfgefin. Þessu er auðvelt að breyta.
Ljómaðu textann sem á að vera punktalisti og í staðinn fyrir að smella á punktahnappinn fer maður í Format á valmyndastikunni og velur þar Bullets and numbering...
Nú kemur upp talgluggi með ýmsum gerðum punkta og maður getur valið einhvern þeirra og síðan smellt á OK. Þá koma þeir punktar sem maður valdi.
Ef maður sér ekki það merki sem maður vill hafa, þá er auðvelt að breyta því. Maður smellir bara á Options flipann og smellir þar á Character hnappinn. Þá opnast annar gluggi þar sem maður getur valið sértákn.
Í þessu tilfelli, þá valdi ég stafgerðina Wingdings vegna þess að þar er samsafn af alls konar táknum og fann þar litla hendi sem bendir til hægri. Þegar ég smelli á OK og svo aftur á OK, þá kemur þetta tákn inn sem punktur.
Nú lítur punktalistinn minn svona út:
Ekki slæmt !


