Prentað úr Writer
Úr OpenOffice.is
Writer er með marga innbyggða möguleika þegar kemur að því að prenta.
Efnisyfirlit |
Snögg prentun
Smelltu á Print File Directly hnappinn
til að senda allt skjalið í prentun í þann prentara sem er sjálfvalinn fyrir þína tölvu.
Athugaðu Þú getur breytt því hvað Print File Directly íkonið gerir með því að fara í Tools > Options > Load/Save > General og velja Load printer settings with the document valmöguleikann.
Að stjórna prentun
Til að geta stjórnað prentuninni og breytt henni, þá ferðu í File > Print til að fá upp Prentgluggann (Sjá mynd 1). Í Prentglugganum getur þú valið:- Hvaða prentara þú vilt nota (ef það eru fleiri en einn prentari í notkun á kerfinu) og stillingar á prentun – til dæmis, lárétt eða lóðrétt prentun, stærð á blaði og svo framvegis. Stillingarnar sem eru til staðar eru mismunandi eftir prentara.
- Hvaða blaðsíður þú vilt prenta, hversu mörg eintök þú vilt prenta, og í hvaða röð þú vilt prenta þau. Notaðu bandstrik til að tilgreina ákveðinn hluta af skjali til prentunar og kommur eða semíkommur til að tilgreina ákveðnar blaðsíður til prentunar: 1,5,11-14,34-40. Selection er sá hluti sem er valinn á blaðsíðu eða blaðsíðum.
- Hvaða atriði á að prenta. Smelltu á Options hnappinn til að sýna Prentgluggann (Sjá mynd 2)
Að velja prentstillingar fyrir skjal
Stillingarnar sem eru valdar í prentvalsglugganum eiga við í því skjali sem verið er að vinna í hverju sinni.
Á meðal þess sem þú getur breytt og stillt í Prentvalsglugganum:
- Í Contents hlutanum getur þú valið að prenta ekki myndefni eða bakgrunn í ritvinnsluskjali(til að spara blek).
- Í Pages hlutanum, getur þú valið:
- Að prenta aðeins vinstri (sléttar tölur) blaðsíður eða aðeins hægri (odda-tölur) blaðsíður. Þessar stillingar eru gagnlegar þegar þú vilt prenta beggja meginn á blaðsíðum, en ert ekki með prentara sem gerir þetta sjálfvirkt.
- Prenta í öfugri röð.
- Bæklingar – Þessi stilling er útskýrð í „Að prenta bækling“.
- Í Notes hlutanum, getur þú valið hvort þú vilt prenta glósur sem settar hafa verið í skjal (Insert > Note), og hvar eigi að prenta þær.
Að prenta í svarthvítu með litprentara
Þú gætir þurft að prenta ritskjöl í svarthvítu með litaprentara, til að spara lit eða tóner. Til að prenta ritvinnsluskjal í svarthvítu eða gráum lit:
- Smelltu á File > Print til að open Prentgluggann.
- Smelltu á Properties til að opna Prentstillingar fyrir prentarann. Fjöldi prentstillinga fer eftir prentaranum, en þú ættir að finna valmöguleika fyrir lit.
- Á meðal lita valmöguleika eiga að vera svart-hvítt eða gráskala. Veldu annað af þessu. Gráskali er bestur ef þú ert með myndefni í ritvinnsluskjalinu. Smelltu á Ok til að staðfesta val þitt og fara aftur í prentgluggann, smelltu síðan á Ok aftur til að prenta skjalið.
Til að stilla OOo Writer þannig að allur texti og myndefni prentast í gráskala:
- Smelltu á Tools > Options > OpenOffice.org > Print.
- Veldu Convert colors to grayscale. Smelltu á Ok til að vista breytingarnar.
Til að setja upp OOo Writer þannig að allur texti og myndefni prentast í svörtum lit, og allt myndefni í gráskala:
- Smelltu á Tools > Options > OpenOffice.org Writer > Print.
- Í Contents hlutanum, velurðu Print black valmöguleikanum. Smelltu á Ok til að vista breytingarnar.
Að forskoða blaðsíður
Venjulegt útlit á blaðsíðu í Writer sýnir þér hvernig hver blaðsíða mun líta út þegar hún er prentuð, en aðeins eina blaðsíðu í einu. Ef þú ert að útbúa ritvinnsluskjal sem á að prentast báðum megin á blað, þá er æskilegt að sjá hvernig báðar blaðsíðurnar líta út í einu. Í OOo Writer eru tvær leiðir til að gera þetta:
- View Layout (Breytanleg Prentlögn) – sjá „Uppröðun við skoðun“.
- Page Preview (les-hamur) – þar sem þú getur prentað margar blaðsíður á eina prentaða blaðsíðu.
Til að nota Prent forskoðun:
- Smelltu á File > Page Preview, eða smelltu á Page Preview hnappinn
. Writer glugginn breytist til að sýna blaðsíðuna og næstu síðu og sýnir líka Page Preview stikuna í staðinn fyrir formunarstikuna.
- Smelltu á Book Preview hnappinn
til að sýna vinstri og hægri blaðsíður í réttum hlutföllum.
- Til að prenta ritvinnsluskjalið frá þessum glugga, smelltu á Print Page View hnappinn
til að opna prentgluggann. Veldu þær stillingar sem þú vilt hafa og smelltu síðan á Ok til að prenta út.
- Til að stilla spássíur og aðrar valmöguleika fyrir prentun, smelltu á Print Options Page View hnappinn
til að sjá Prentgluggann.
Að prenta bækling
Þú getur prentað skjal með tveimur lessíðum á eina blaðsíðu báðum megin þannig að úr verði bæklingur ef blaðið er brotið í tvennt.
Til að prenta bækling í prentara sem getur ekki prentað sjálfvirkt báðum megin:
- Settu skjalið þannig upp að það líti vel út (veldu viðeigandi spássíur, leturstærð og svo framvegis). Smelltu á File > Print. Í Prentglugganum smellir þú á Properties og athugar að prentarinn sé stilltur á sömu legu (lárétt eða lóðrétt) og þarf fyrir skjalið. (Venjulega skiptir lega ekki máli nema þegar verið er að vinna með bæklinga).
- Smelltu á Options. Í Pages hlutanum í Prentglugganum skaltu velja Brochure og Right pages. Smelltu á Ok tvisvar til að prenta fyrstu síðuna á hverri blaðsíðu.
- Snúðu blöðunum við og settu þau aftur inn í prentarann, í réttri legu til að prenta á auðu hliðina. Þú gætir þurft prófa þig áfram til að finna réttu leiðina.
- Smelltu á File > Print > Properties til að athuga hvort uppsetningin á prentaranum sé rétt.
- Smelltu á Options aftur. Í Pages hlutanum í Prentglugganum skaltu smella á Brochure og Left pages. Smelltu tvisvar á OK til að prenta hina hliðina.
Ef prentarinn þinn getur prentað báðum megin þá skaltu haka við Left pages, Right Pages, og Brochure í Pages hlutanum og þá gerir prentarinn þetta allt saman fyrir þig sjálfvirkt.
Að prenta umslög
Að prenta umslög gengur út á tvennt: uppsetningu og prentun:- Smelltu á Insert > Envelope á valmyndinni.
- Í Envelope glugganum skaltu byrja á Envelope flipanum (Sjá mynd 5) þar sem þú getur bætt inn eða breytt upplýsingum um viðtakanda og sendanda. Þú getur skrifað upplýsingarnar beint inn í viðeigandi kassa (Addressee og Sender) eða notað fellivalslistann sem er hægra megin til að ná í gögn/töflur sem þú getur sótt heimilisföngin úr (ef hann er til).
- Næst skaltu smella á Format flipann (mynd 61) þar sem þú getur staðfest eða breytt staðsetningu á upplýsingunum sem koma fram á umslaginu. Forskoðunarsvæði neðst hægra megin sýnir þér hvaða áhrif breytingarnar sem þú gerir hafa á umslagið. Til að setja upp textann þá skaltu smella á Edit hnappinn til hægri. Í fellivalslistanum sem birtist eru tveir valmöguleikar. Character og Paragraph.
- Í Character getur þú breytt letrinu; stærð, gerð, útliti, undirstrikun, bakgrunni, snúningi og legu.
- Í Paragraph getur þú breytt spássíum, línubili, staðsetningu, textaflæði, flipum, römmum og bakgrunni.
- Neðst vinstra meginn á Format flipanum getur þú valið stærðina á umslaginu með því að smella á örina hægra meginn við Format gluggann. Þá birtist fellivalslisti með mögulegum stærðum. Í þessum lista getur þú líka valið User Defined sem þýðir að þú ætlar sjálfur að búa til einhverja ákveðna stærð.
- Eftir að þú hefur sett upp textann þá skaltu smella á Printer flipann (Sjá mynd 7) til að setja upp prentstillingar eins og til dæmis legu á umslagi o.s.frv. Þú gætir þurft að prófa þig áfram hér til að finna út hvað virkar best fyrir þinn prentara.
- Þegar þú hefur lokið við að setja upp textann og ert tilbúinn að prenta út umslagið þá skaltu smella á annaðhvort New Doc eða Insert hnappinn til að ljúka verkinu. New Doc skipunin býr til umslagið í nýju ritvinnsluskjali en Insert skipunin setur umslagið inn í ritvinnsluskjal sem er þegar opið. Ef þú vilt hinsvegar hætta við þá smellirðu á Cancel eða ýtir á ESC á lyklaborðinu. Þú getur líka smellt á Reset til að þurrka út allar breytingar og byrja upp á nýtt.
- Þegar umslagsglugginn lokast þá ferðu strax í ritvinnsluskjalið sem er opið. Núna er umslagið í sömu skrá og ritvinnsluskjalið. Vistaðu þessa skrá áður en þú gerir nokkuð annað.
Til að prenta umslagið:
- Smelltu á File > Print.
- Í Prentglugganum, í Print Range, veldu Pages og skrifaðu 1 í kassann. Smelltu á Ok til að prenta.
Að prenta út merkimiða
Merkimiðar eru yfirleitt notaðir til að prenta út heimilisfangalista (þar sem hver miði sýnir nýtt heimilisfang), en þeir geta líka verið notaðir til að búa til mörg eintök af sama heimilisfanginu.
Til að prenta út merkimiða:- Smelltu á File > New > Labels á valmyndinni. Þá opnast Merkmiða glugginn.
- Í Label flipanum getur þú fyllt inn í textann sem á að koma á merkimiðann í Inscription kassanum eða notað Database og Table til að velja þær upplýsingar sem eiga að koma fram á miðanum.
- Veldu hvaða tegund af merkimiðum þú vilt nota í Brand fellivalslistanum neðst hægra meginn og stærðina getur þú síðan valið í Type fellivalslistanum fyrir neðan. Þú getur líka valið User í fellivalslistanum sem þýðir að þú ætlar sjálfur að gera breytingar á stærðinni.
- Í Format flipanum (sjá mynd 7) getur þú breytt stærð, spássíum, dálkum og röðum ef þú ert að búa til merkmiða eða samþykkt breytingar á sjálfvöldum merkimiðum sem þú hefur valið.
- Smelltu á Save til að vista allar breytingar.
- Þegar þú hefur lokið við að setja upp merkimiðana þá skaltu smella á New Document til að búa til síðu með merkimiðunum. Þú getur líka smellt á Cancel (ESC) til að hætta við. Þú getur líka smellt á Reset til að byrja alveg upp á nýtt. Í Options flipanum (mynd 8) getur þú valið hvort þú vilt prenta út heila blaðsíðu af merkimiðum eða einn merkimiða og síðan valið líka hvaða röð eða dálk þú vilt prenta út. Þú getur líka breytt prentstillingum í þessum flipa.
- Þú getur prentað strax með því að smella á Print File Directly hnappinn á hnappastikunni eða með því að velja File > Print á valmyndinni. Þú getur líka vistað skrána til að prenta seinna.

