OpenOffice.org ræst

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Algengasta aðferðin við að ræsa OOo er að nota kerfisvalmyndina, valmyndina sem notuð er til að setja flest forrit af stað. Í Windows er hún kölluð Start menu. Á GNOME er hún kölluð Applications menu. Á KDE er hún sýnd með KDE táknmyndinni. Á Mac OS X er hún kölluð Applications menu.

Þegar OOo var sett upp, var í flestum tilfellum sett inn valmyndaratriði fyrir hvert forrit fyrir sig (ef þú ert að nota Mac, þá skaltu lesa athugasemd hér fyrir neðan.) Nöfn og staðsetningar þessara atriða fara eftir stýrikerfi og því myndræna viðmóti sem verið er að nota.

Efnisyfirlit

Athugasemd fyrir Mac notendur

Þú ættir að sjá OpenOffice.org táknmyndina í Applications möppunni. Þegar þú tvísmellir á hana, þá opnast textaskjal í Writer. Til að opna hin forritin (Calc, Impress, Draw, Base) þarft þú að fara í File á valstiku Writer og velja það forrit sem þú vilt nota.

OOo setur ekki sjálft flýtitákn á skjáborðið, en þú getur sett það þar ef þú vilt. Ef þú veist ekki hvernig á að setja táknmynd á skjáborðið, þá skaltu nota hjálparkerfi tölvunnar þinnar til að fá þær upplýsingar.

Byrjað frá skjali sem er til

Hægt er að setja OOo af stað með því að tvísmella á nafn skjal í skjalstjóra eins og Windows Explorer. Viðeigandi forrit OOo fer þá af stað og sýnir skjalið.

Athugasemd fyrir Windows notendur

Ef þú hefur tengt Microsoft Office skjalformið við OOo, þá opnast Writer í hvert sinn sem þú tvísmellir á *.doc (Word) skjal; *.xls (Excel) skjöl opnast í Calc og *.ppt (Powerpoint) skjöl opnast í Impress.

Ef þú tengdir ekki skjalformin, þá opnast Microsoft Word skjal í Microsoft Word (ef Word er upp sett á tölvunni þinni), Excel skjal opnast í Excel og Powerpoint skjal opnast í Powerpoint.

Hægt er að nota aðrar aðferðir til að opna Microsoft Office skjöl í OOo og vista þau skjalform úr OOo. Skoðaðu frekari upplýsingar í kaflanum „Eldra skjal opnað“ á blaðsíðu 19.

Flýtiræsir notaður í Windows

Flýtiræsirinn er táknmynd sem sett er í kerfisbakka Windows við ræsingu. Hann sýnir að OpenOffice.org hefur verið hlaðið upp og er tilbúið til notkunar. (Flýtiræsirinn hleður upp .DLL skrár sem OOo þarf til vinnslu og styttir þar með tímann sem það tekur að setja forrit OOo í gang um alla vega helming.) Ef flýtiræsirinn er aftengdur skaltu skoða „Flýtiræsir settur í gang aftur“ hér fyrir neðan ef þú vilt tengja hann aftur.

Tákmynd flýtiræsis notuð

Sprettigluggi fyrir Flýtiræsi
Hægri-smelltu á táknmynd flýtiræsis í kerfisbakkanum til að opna sprettivalmynd þar sem þú getur valið að opna nýtt skjal, opna talglugga fyrir sniðmát og skjöl eða velja að opna skjal sem er þegar til. Þú getur einnig tvísmellt á táknmynd flýtiræsisins til að fá talglugga sniðmáta og skjala.

Flýtiræsirinn aftengdur

Til að loka Flýtiræsinum er hægri-smellt á táknmynd hans í kerfisbakkanum og síðan smellt á Exit Quickstarter á sprettivalinu. Næst þegar tölvan er ræst, þá verður flýtiræsinum hlaðið upp aftur.

Til að koma í veg fyrir að OpenOffice.org hlaðist upp við ræsingu tölvunnar þarf að taka hakið af við Load OpenOffice.org during system start-up á sprettivalinu. Þú vilt hugsanlega gera það ef tölvan þín hefur t.d. takmarkað minni.

Flýtiræsirinn settur í gang aftur

Ef Flýtiræsirinn hefur verið aftengdur, þá er hægt að setja hann af stað aftur með því að haka við Load OpenOffice.org during system start-up í Tools > Options > OpenOffice.org > Memory.

Flýtiræsirinn notaður í Linux

Sumar uppsetningar OpenOffice.org í Linux hafa flýtiræsi sem lítur út og hagar sér eins og sá sem áður er lýst fyrir Windows (hakið á Memory flipanum, er við Enable systray quickstarter).

Tenglar