Notkun á Object Properties talglugganum

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Skjöl hafa mismunandi tilgang, sum eru notuð til að setja fram efni með glærusýningum og önnur eru prentuð út í svart-hvítu. Í þeim tilvikum kemur sér vel að Objects Properties glugginn býður upp á margvíslega stjórnun og stýringu á mismunandi hlutum myndrita.

Til að opna Object Properties talgluggann er smellt á það atriði sem á að laga til. Við það koma grænir ferningar á það atriði. Síðan er hægri-smellt á viðkomandi atriði og valið Object Properties af sprettivalinu sem upp kemur. Hvert atriði í myndriti hefur sitt eigið safn flipa. Í næstu köflum ætlum við að skoða suma þessara hluta á Object Properties talglugganum.

Ásar kvarðaðir

Mynd 1: Ás kvarðaður

Stundum þarf maður að setja sérstakan mælikvarða á annan ásinn á myndriti. Eftir að maður er búinn að velja viðkomandi ás er hægri-smellt á hann og síðan valið Object Properties af sprettivalinu. Á Scale flipanum (sjá mynd 1) er hægt að ákveða hvort ásinn á að vera lógariþmískur eða línulegur, hvar merki eiga að sjást og nákvæmni kvarðans.

En fyrst þarf að taka hakið af við Automatic til að hægt sé að breyta gildum.


Gagna- og ásamerki formuð

Mynd 2: Breytingar gerðar á merkingum ása

Það er líka hægt að stýra eigindum merkinga á atriðum myndrita. Smelltu vandlega á atriði á myndritinu og náðu síðan í Object Properties gluggann. Þar er hægt að breyta lit á textanum, stærð stafanna og öðru.

Á Gagnamerkisflipanum (Data Labels) er hægt að velja að:

  • Sýna merkingar sem texta
  • Sýna töluleg gildi sem hlutfall eða tölu
  • Setja skýringarboxið sem hluta merkinga

Textinn í merkjum er tekinn úr dálkhausum og er ekki hægt að breyta þeim hér. Ef það þarf að stytta textann, eða ef merkingar detta ekki inn á myndritið eins og til var ætlast, þá er ekki hægt að breyta því í Object Properties glugganum. Þú verður að breyta því í töflunni sjálfri.

Ásamerki hafa aðra valkosti. Label flipinn í stilliglugganum er sýndur á mynd 2.


Tákn valin og formuð

Mynd 3: Tákn valin

Í línu- og dreifiritum er hægt að breyta táknunum sem sýna gagnapunktana í mismunandi form og liti í gegnum Object Properties talgluggann.

Á Line flipanum í Object Properties glugganum fyrir gagnaseríu er hægt að velja Select > Symbols af fellivali. Hér er hægt að velja að hafa engin tákn, velja tákn úr fyrirfram upp-settum lista, sækja merki úr Gallerýinu eða setja einhverja mynd sem maður vill hafa í staðinn. Hún er valin með Select > From file.