Nýtt töfluskjal búið til

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Hægt er að búa til nýtt töfluskjal úr öðrum OOo forritum t. d. Writer eða Draw

Með valslánni 
Smelltu á File og veldu síðan New > Spreadsheet.
Með hnappastikunni 
Notaðu New Document hnappinn á hnappastikunni . Smelltu á örina hægra megin á hnappnum til að velja aðra tegunda af skjali (textaskjal, glærur o. s. frv.). Smelltu á hnappinn sjálfan til að búa til skjal af sömu tegund og er opið (ef töfluskjal er opið þá verður til nýtt töfluskjal).
Með lyklaborði 
Ef þú ert með töfluskjal opið þá er hægt að búa til nýtt skjal með CTRL+N
Með sniðmáti 
Töfluskjal er hægt að búa til með sniðmáti ef þú ert með þannig síðu. Aðferðin er sú sama og hér að ofan nema í staðinn fyrir það að velja File > New > Spreadsheet þá á að velja File > New > Templates and Documents, finna rétt sniðmát og tvísmella á það. Nú opnast ný síða sem byggð er á útliti sniðmátsins.