Nýtt skjal búið til
Úr OpenOffice.is
Hægt er að nota nokkrar aðferðir við að búa til nýtt skjal í OpenOffice.org. Þegar OOo er opið, en ekkert skjal er opið (t.d ef þú lokar öllum skjölum en hefur forritið enn gangandi), þá sést Opnunargluggi OOo. Nú má smella á einhverja táknmyndina til að opna skjal í viðkomandi forriti eða smella á Templates táknmyndina til að búa til nýtt skjal byggt á ákveðnu sniðmáti.
Það er líka hægt að búa til nýtt skjal á eftirfarandi hátt. Ef skjal er opið í OOo, þá opnast nýja skjalið í nýjum glugga.
- Notaðu File > New og veldu hvaða gerð skjals þú vilt.
- Notaðu örina við hliðina á New hnappnum á aðal hnappastikunni. Af fellivalmyndinni velur þú hvers konar skjal þú vilt búa til
- Ýttu á CTRL+N lyklana á lyklaborðinu.
- Notaðu File > Wizards til að búa til vissar skjalgerðir.

