Ný sýning búin til

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Þessi hluti lýsir því hvernig á að búa til glærusýningu.

Að skipuleggja glærusýningu

Það fyrsta sem þarf að gera er að ákveða hvað þú ætlar að gera við glærusýninguna. Ef þig langar til dæmis til að setja upp einskonar myndasýningu með glærusýningu þá er það leikur einn. En ef þig langar til að nota glærusýningu til að kenna eða nota til lærdóms þá þarf að skipuleggja sýninguna vel og vandlega.

Þú þarft að skrifa niður nokkra punkta áður en þú byrjar að búa til glærusýninguna. Ef þú kannt ekki að búa til glærusýningu þá er nauðsynlegt að fara yfir þau grunnatriði sem mikilvægt er að hafa í huga við gerð glærusýningar:

  1. Fyrir hvern er glærusýningin?
  2. Hvernig á að nota glærusýninguna?
  3. Hvert er efni glærusýningarinnar?
  4. Hvað ætti að vera í yfirlitinu?
  5. Hversu ítarlega á að fara í efnið?
  6. Á að vera hljóðskrá með glærusýningunni?
  7. Er nauðsynlegt að hafa hreyfingu á texta og grafík?
  8. Hvernig á skiptingin milli glæra að vera?

Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem vert er að hafa í huga þegar verið er að skipuleggja glærusýningu.

Það er ekki nauðsynlegt að hafa svörin við öllum þessum spurningum á hreinu þegar byrjað er að búa til glærusýninguna en það er nauðsynlegt að búa til einskonar yfirlit. Það getur vel verið að þú vitir hvaða efni þú vilt hafa á sumum glærum en síðan gæti líka verið að þú sért ekki alveg viss hvað á að fara á aðrar. Það er allt í lagi. Þú getur gert breytingar þegar þú ert að búa til sýninguna en mikilvægt er að þú breytir þá líka yfirlitinu um leið og þú gerir þessar breytingar.

Það mikilvægasta í þessu öllu saman er að þú hafir nokkuð góða hugmynd um hvað þú vilt, hvernig þú getur búið það til og setja þessar upplýsingar á blað. Það gerir þér auðveldara fyrir þegar þú byrjar að búa til glærusýninguna.

Að nota glæruálfinn

Þú getur opnað Impress forritið á ýmsa vegu:

  • Í opnunarglugganum (OOo Welcome screen) ef ekkert annað forrit er opið.
  • Í kerfis valmyndinni eða OOo flýtiræsinum.
  • Þú getur líka opnað Impress í öllum hinum forritunum sem fylgja OpenOffice.org með því að smella á New á aðavalstikunni og síðan á Presentation. Þú getur líka smellt á File > New > Presentation.
Mynd 1: Gerð glærusýningar valin
Þegar þú opnar Impress þá opnast líka svokallaður glæruálfur sjálfkrafa. Sjá mynd 1.
Ráð
Ef þú vilt ekki að glæruálfurinn opnist í hvert skipti sem þú opnar Impress
þá skaltu haka við Do not show this wizard again kassann. Þú getur síðan
virkjað álfinn aftur með því að smella á Tools > Options > OpenOffice.org
Impress > General > Wizard og haka við Start with wizard kassann.
Hakaðu við Forskoðunarkassann (Preview)  þannig að þú getir séð öll forsnið,
glæruútlit og hreyfingar sem eru í glærusýningunni þegar þú velur þau atriði
sem þú ætlar að hafa.
Mynd 2: Glærusýning búin til
Mynd 3: Glærusýning búin til
  1. Smelltu á Empty presentation í Type hlutanum. Með þessu getur þú búið til glærusýningu frá upphafi.
  2. Smelltu á Next. (Sjá mynd 1)
  3. Veldu það útlit sem þú vilt hafa á glærusýningunni í Select a slide design. Hérna getur þú valið bakgrunn á glærusýningunni (Presentation Backgrounds) og glærusýningu (Presentation). Ef þú vilt velja eitthvað af þessu þá smellirðu á viðeigandi valmöguleika.
    • Þegar þú ert að velja bakgrunn á glærusýningu þá geturðu smellt á bakgrunn og séð hvernig hann kemur út á glærusýningunni í forskoðunarglugganum (Preview). Í Impress geturðu valið um þrjár tegundir af glærusýningu <Original>, Introducing a New Product og Recommendation of a Strategy.
    • <Original> er autt blað, ef þú vilt búa til þína glærusýningu frá upphafi.
    • Introducing a New Product og Recommendation of a Strategy eru forsniðnar glærusýningar sem eru með ákveðið útlit og bakgrunn. Þú getur forskoðað (Preview) þessar glærusýningar með því að smella á þær einu sinni.
  4. Veldu hvernig glærusýningin á að vera notuð í Select an output medium. Oftast eru glærusýningarnar notaðar í tölvum. Veldu Screen.
  5. Smelltu á Next. Skref þrjú í glæruálfinum birtist.
  6. Veldu hreyfingar á glærusýninguna úr fellilistanum sem birtist undir Effect.
  7. Veldu þann hraða sem þú vilt hafa á glærusýningunni þ.e.a.s. hraða á milli glæra úr fellilistanum sem birtist undir Speed.
  8. Smelltu á Create. Þá er glærusýningin tilbúin.
Athugaðu
From Template býður þér upp á að nota útlit sem er forsniðið. Það birtist
listi með þeim forsniðum sem eru til taks. Veldu það forsnið sem þú vilt. 
Open Existing Presentation býður þér upp á að halda áfram vinnu í glærusýningu
sem er í vinnslu. Það birtist listi með þeim glærusýningum sem eru til taks.
Veldu þá glærusýningu sem þú ætlar að vinna í.
Athugaðu
Introducing a New Product og Recommendation of a Strategy eru forsniðnar
glærusýningar og hægt er að nota þær í fyrsta skrefinu í From template
valmöguleikanum.(Sjá mynd 1)
Ráð
Það er best að velja Sjálfval (Default) í hreyfingar og hraða á glærum ef þú ert að
búa til þína fyrstu glærusýningu. Þú getur síðan breytt þessu eins og þú vilt þegar
þú ert að vinna í glærunum með því að fara í Slide transitions og Animations.
Athugaðu
Ef þú velur From template í fyrsta skrefinu í glæruálfinum þá verður Next takkinn
virkur í þriðja skrefi og aðrar síður verða þá tiltækar.  Þeim er ekki lýst hér.
Tenglar