Myndrit löguð til
Úr OpenOffice.is
Þegar maður er búinn að búa til myndrit, þá getur verið að maður vilji breyta því. Með Calc fylgja ýmis tól til að breyta tegund myndrits, gagnasvæðum, stafagerðum og ýmsu öðru í gegnum Insert og Format valmyndirnar og með Myndritshnappastikunni.
Efnisyfirlit |
Tegund myndrits breytt
Hægt er að breyta tegund myndritsins hvenær sem er. Til að gera það:
- Veldu myndritið með því að tvísmella á það. Þá ætti nú að vera grár kassi utan um það.
- Gerðu síðan eitt af eftirfarandi:
Í öllum tilfellum opnast talgluggi með upplýsingum svipuðum og þegar myndritið var búið til.
Atriðum bætt á eða tekin af myndriti
Myndir 1 og 2 sýna atriðin í tví- og þrívíðum myndritum.
Sjálfgefið tvívítt myndrit inniheldur aðeins tvö af þessum atriðum:
- Vegginn sem inniheldur myndina sjálfa sem sýnir gögnin.
- Myndritssvæðið sem er umhverfis myndina. Titillinn og skýringarnar (valkvæð) eru á myndritssvæðinu.
Sjálfgefið þrívítt myndrit hefur einnig gólf, sem ekki sést í tvívíðum myndum.
Hægt er að bæta við atriðum með Insert valmyndinni eins og sést á mynd 3. Atriðin opnast hvert í sínum talglugga þar sem hægt er að skilgreina smáatriði varðandi þau.Veldu fyrst myndritið með því að tvísemella á það.
Talgluggarnir fyrir titla (Title), ása (Axes), grindur (Grids), og skýringar (Legend) eru auðskiljanlegir. Hinir eru örlítið flóknari, svo við skulum skoða þá hér.
Gagnamerki
Gagnamerki (Data labels) setja upplýsingar um hvern gagnapunkt á myndina. Þau geta verið sérlega gagnleg þegar þarf að láta nákvæmar upplýsingar í té, en maður verður samt að vera varkár að búa ekki til myndrit sem er of hlaðið til að auðvelt sé að lesa úr því.Kostirnir á talglugga gagnamerkja eru:
- Sýna gildi sem tölu (Show value as number)
- Sýna talnagildi gagnapunkts. Þegar þessi kostur er valinn, þá verður Talnaformunar hnappurinn virkur.
- Talnaformun (Number format)
- Opnar talglugga fyrir talnaformun þar sem maður getur valið útlit tölunnar. Þessi talgluggi er svipaður þeim sem maður notar til að forma tölur í reitum.
- Sýna tölu sem prósentu (Show value as percentage)
- Breytir tölugildi gagnapunkts í prósentugildi fyrir viðkomandi dálk. Þegar þessi kostur er valinn verður Prósentuformunar hnappurinn virkur.
- Prósentuformun (Percentage format)
- Opnar talglugga fyrir prósentuformun þar sem maður getur valið útlit prósentunnar.
- Sýna flokk (Show category)
- Sýnir textaskýringar fyrir gagnapunkta.
- Sýna skýringar (Show legend key)
- Setur tákn fyrir skýringar við hlið hvers gagnapunkts.
- Skil (Separator)
- Velur skiltákn á milli fjölda textastrengja fyrir sama hlutinn.
- Staðsetning (Placement)
- Velur staðsetningu á gagnamerkjum miðað við hlutinn.
Stefnulínur
Þegar maður er með fjölda dreifðra punkta á grafi, þá er líklegt að maður vilji sýna hvernig þessir puntar tengjast innbyrðis. Þá þarf maður svokallað stefnulínu (trend line). Calc er með úrval aðhvarfslína sem hægt er að nota til að sýna stefnulínur: línulegar (linear), lógariþmískar (logarithm), veldisvísaðar (exponential) og margfaldaðar (power). Veldu Insert > Trend Lines, og veldu síðan þá gerð stefnulínu sem þú vilt fá.Til að setja inn stefnulínu fyrir eitt gagnasett, þá velur maður gagnasettið í grafinu, hægri-smellir til að opna sprettival og velur þar Insert > Trend Line.
Til að eyða einni stefnulínu eða meðalgildislínu er smellt á línuna og síðan ýtt á DELETE lykilinn á lyklaborðinu.
Til að eyða öllum stefnulínum er valið Insert > Trend Lines, og þar er valið None.
Skýring fyrir stefnulínu kemur sjálfkrafa á myndritið.
Ef maður setur inn stefnulínu á myndrit sem notar flokka, eins og Lína eða Dálkur, þá eru tölurnar 1, 2, 3, ... notaðar sem x-gildi til að reikna stefnulínuna.
Stefnulínan tekur sama lit og viðkomandi gagnasett. Til að breyta lit línunnar er hún valin og síðan valið Format > Object Properties > Line.
Til að sýna formúluna fyrir línunni er línan valin í myndritinu, hægri-smellt á hana til að fá fram sprettival og þar valið Insert Trend Line Equation.
Á meðan myndritið er enn í breytiham getur OpenOffice.org gefið manni formúluna á stefnulínunni og fylgnistuðul hennar. Smelltu á stefnulínuna til að sjá þessar upplýsingar í stöðulínunni. Til að láta formúluna og fylgnistuðulinn sjást er aðhvarfið valið og síðan Format > Object Properties > Equation.
Meðalgildislínur
Ef meðalgildislínur eru valdar, þá reiknar Calc meðaltal hvers gagnasetts og setur litaða línu á réttan stað í myndritinu.
Fráviksmerking
Ef verið er að setja fram gögn með þekktum frávikum, eins og niðurstöður skoðanakannana sem byggðar eru á tilteknu þýði, eða maður vill sýna nákvæmni tólanna sem notuð voru, þá er hægt að láta frávikið sjást á myndritinu.Nokkrir valkostir eru til fyrir fráviksmerkinguna (sjá mynd 6). Hægt er að velja einn valkost í einu. Einnig er hægt að velja um hvort merkingin sýni bæði jákvætt og neikvætt frávik, eða aðeins jákvætt eða aðeins neikvætt.
- Fasti (Constant Value) – hægt er að hafa mismunandi jákvæð og neikvæð gildi.
- Prósentur (Percentage) – frávikið er prósentuhlutfall af gagnapunktinum.
- Í fellivalinu:
- Staðalskekkja (Standard error)
- Dreifni (Variance) – sýnir frávik reiknað út frá stærð hæsta og lægsta gagnapunkts.
- Staðalfrávik (Standard deviation) – sýnir frávikið reiknað út frá staðalfráviki.
- Villuvik (Error margin) – maður tilgreinir villuna sjálfur
- Reitasvið (Cell range) – reiknar frávikið út frá reitasviðinu sem valið var. Parameters hlutinn neðst í glugganum breytist til að hægt sé að lagfæra val á reitum.

