Myndrit formuð

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita
Mynd 1: Formunarvalmynd myndrita

Á Format valmyndinni eru margir kostir til að forma og fínstilla útlit myndrita.

Tvísmelltu á myndritið svo það fái gráan ramma, sem sýnir að það er á breytingaskeiðinu. Smelltu á Format á aðalvalmyndinni (sjá mynd 1).

  • Object Properties opnar talglugga þar sem hægt er að skilgreina fyllingu, ramma, gagnsæi, stafi, stafaútlit og annað.
  • Position and Size opnar talglugga þar sem hægt er að fínstilla stærð og staðsetningu myndritsins.
  • Arrangement gefur tvo möguleika: Færa framar og Senda aftar. Í sumum tilfellum er bara annar þessara möguleika virkur. Þessir möguleikar eru notaði til að raða gögnum sem skarast.
  • Title formar titla myndrits og ása þess.
  • Axis formar ásana sem myndritið er teiknað á og stafagerðina á texta sem kemur bæði á X og Y ás.
  • Grid formar strikin sem búa til grindina fyrir myndritið.
  • Legend formar staðsetningu, ramma, bakgrunn og stafagerð í skýringunni.
  • Chart Wall, Chart Floor, og Chart Area er öllum lýst í næstu köflum.
  • Chart Type er notað til að skipta um tegund myndrits og hvort það er tvívítt eða þrívitt.
  • 3D View formar þrívíð myndrit.
Athugaðu
Chart Floor og 3D View eru bara virk þegar búið er að gera myndrit þrívítt. 
Þessir kostir eru óvirkir (gráir) ef myndritið er tvívítt.

Í flestum tilfellum verður maður að vera nokkuð viss um að velja nákvæmlega það atriði sem maður ætlar að forma. Stundum getur þetta verið erfitt með músinni, ef það eru mörg atriði á myndritinu, sérstaklega ef þau eru smá og þau skarast mikið. Ef Vísbendingar (Tooltips) er virkt, þá koma oft viðkomandi atriða fram þegar músin vokar yfir þeim. Þegar maður er búinn að velja eitt atriði, þá getur maður hoppað á næstu atriði með því að ýta á dálklykilinn á lyklaborðinu (TAB). Nafn þess atriðis sem valið er kemur fram á stöðulínunni.

Efnisyfirlit

Atriði færð til á myndriti

Stundum vill maður færa til eða breyta stærð einstakra atriða á myndriti, óháð öðrum atriðum. Til dæmis gæti verið sniðugt að færa skýringartexta á annan stað. Í kökuritum er hægt að færa stakar sneiðar (auk þess að velja „útsprengda“ köku).

  1. Tvísmelltu á myndritið þannig að það fái gráan ramma.
  2. Smelltu á eitthvert atriðið – titilinn, skýringarnar eða myndina sjálfa – til að velja það. Þá koma fram græn handföng.
  3. Færðu músarbendilinn á atriðið sem valið er. Þegar hann breytir um form, þá er hægt að smella og draga atriðið til.
  4. Slepptu músarbendlinum þegar atriðið er komið á rétta staðinn.
Athugaðu
Ef myndritið er í þrívídd, þá koma rauð kringlótt handföng sem stýra
þrívíddaráhrifum myndarinnar.  Ekki er hægt að breyta stærð myndar á meðan
rauðu handföngin sjást.  Ef rauðu handföngin eru uppi, þá skaltu halda niðri
<SHIFT> lyklinum og smella með músinni til að fá grænu handföngin.  Þá er
hægt að breyta stærð og staðsetningu þrívíddarmyndar.
Ráð
Hægt er að breyta stærð atriða á myndriti með grænu handföngunum (Haltu
niðri <SHIFT> lyklinum á meðan þú smellir og dregur til að halda hlutföllum).
Það er þó ekki hægt að breyta stærð á titli skýringanna.

Bakgrunni myndritsins breytt

Mynd 2: Talgluggi fyrir myndritssvæði
Myndritssvæðið er það sem stendur út undan þegar myndinni sjálfri sleppir, þar með talið titillinn og skýringar.
  1. Tvísmelltu á myndritið þannig að það fái gráan ramma.
  2. Veldu Format > Chart Area. Nú opnast Chart Area glugginn (sjá mynd 145).
  3. Gerðu þær breytingar sem þú vilt.

Á Area flipanum getur þú breytt lit bakgrunnsins eða valið tilbúna litablöndu, strikun eða mynd. Smelltu á felligluggann til að sjá möguleikana. Litlaus mynstur eru líklega best ef þú þarft að prenta myndritið út í svart-hvítu.

Einnig er hægt að velja gagnsæi á Transparency flipanum.

Bakgrunni myndarinnar breytt

Veggur myndritsins er það svæði sem myndin sjálf er á.

  1. Tvísmelltu á myndritið þannig að það fái gráan ramma.
  2. Veldu Format > Chart Wall. Þá opnast Chart Wall glugginn. Hann hefur allar sömu stillingar og glugginn fyrir myndritssvæðið.
  3. Gerðu allar þær stillingar sem þú vilt og smelltu á OK.

Skipt um liti

Ef þú vilt fá annað litaskema fyrir öll þín skjöl en það sem er sjálfgefið, þá skaltu velja Tools > Options > Charts > Colors, en þar er um mun fleiri litasamsetningar að velja. Þessar stillingar breyta sjálfgefnum litum í öllum myndritum sem þú kemur til með að gera.

Tenglar