Myndir staðsettar í texta
Úr OpenOffice.is
Efnisyfirlit |
Staðsetning
Þegar maður setur mynd í textaskjal, þá þarf maður að ákveða hvernig hún á að vera staðsett miðað við textann og aðrar myndir. Staðsetning mynda er oft tímafrek og erfið, bæði fyrir þá sem eru vanir og þá sem eru óvanir ritvinnslu. Þar sem Writer er ritvinnsluforrit, frekar en umbrotsforrit, þá eru takmarkanir á sveigjanleika myndstaðsetningar og það tekur stundum dálítinn tíma að koma þeim rétt fyrir. Þetta hefur þó verið lagað heilmikið í OpenOffice.org 3.0, þar sem þetta verk er gert auðveldara með svokölluðum „lausum akkerum“.
Staðsetningu mynda er stjórnað með því að vinna við fjögur atriði:
- Röðun (Arrangement) er það kallað þegar myndum er raðað á ímyndaðan ás sem liggur út úr skjánum. Röðun stjórnar því hvernig myndir raðast hver fyrir framan aðra eða miðað við textann.
- Uppstilling (Alignment) er það kallað þegar myndum er stillt upp lárétt eða lóðrétt á blaðið miðað við festipunktinn.
- Festing (Anchoring) er tilvísunarpunkturinn fyrir myndina. Þessi punktur getur verið öll síðan eða ramminn sem myndin er í, efnigrein, eða jafnvel tákn.
- Textaflæði (Wrapping) er notað um samband myndarinnar við textann í kringum hana, sem getur flætt í kring um hana, hvort sem er öðru megin eða báðum megin, horfið á bakvið hana, eða komið fram fyrir hana, eða jafnvel tekið myndina sem sértakt tákn.
Stillingar á þessum fjórum atriðum er hægt að nálgast á mismunandi hátt eftir því hvernig mynd er um að ræða:
- Af Format myndinni þar sem hægt er að finna Alignment, Arrange, Wrap, og Anchor (bæði fyrir myndir og teiknihluti).
- Af sprettivalinu sem kemur upp þegar maður hægri-smellir á myndina.
- Af Frame hnappastikunni sem sýnd er á mynd 1 fyrir myndir sem búnar eru til með Graphics rammastíl.
- Af Type og Wrap flipunum á talglugga fyrir myndir. Athugaðu að ekki er hægt að stilla röðun (arrangement) af þessum talglugga. Til að opna talglugga fyrir myndir er smellt á myndina til að velja hana og síðan valið Format > Picture eða hægri-smellt á myndina og Picture valið af sprettivalinu.
- Af Position and Size flipanum á Staðsetning og stærð talglugganum fyrir teiknihluti. Til að opna þennan talglugga er smellt á teiknihlutinn til að velja hann og síðan valið Format > Object > Position and Size eða hægri-smellt á hlutinn og valið Position and Size á sprettivalinu. Athugaðu að aðeins er hægt að stjórna uppstillingu og festingu.
|
1 Virkja stíl 2 Flæði af 3 Síðuflæði 4 Flæði í gegn 5 Uppstilling til hægri |
6 Uppstilling í miðju 7 Uppstilling til vinstri 8 Efst 9 Fyrir miðju 10 Neðst |
11 Rammi 12 Strikstíll 13 Striklitur (ramma) 14 Bakgrunnslitur 15 Stilling ramma |
16 Færa fremst 17 Senda aftast 18 Breyta festingu (akkeri) 19 Tengja ramma 20 Aftengja ramma |
Myndum raðað
Þegar mynd er raðað er staðsetning hennar ákvörðuð miðað við aðrar myndir. Röðun á bara við ef myndir skarast. Hægt er að velja um fjórar stillingar og síðan er ein aukastilling fyrir teiknihluti:- Bring to Front: Færa fremst: setur myndina framar en aðrar myndir og texta þannig að hún þekur þær eða hluta þeirra.
- Bring Forward: Færa fram: færir hlutinn upp um eitt þrep í bunkanum (z-ás). Hugsanlega þarf að framkvæma þessa aðgerð nokkrum sinnum til að fá fram það sem óskað er eftir.
- Send Backward: Senda aftar: Þetta er andstaða Færa fram og sendir valinn hlut eitt þrep neðar í bunkanum.
- Send to Back: Senda aftast: sendir valda mynd aftast í bunkann, þannig að allar aðrar myndir, texti og teiknihlutir hylja hana eða hluta hennar.
- To Background / To Foreground: Í bakgrunn / Í forgrunn: á aðeins við um teiknihluti; færir viðkomandi hlut aftur fyrir eða fram fyrir texta.
Myndir festar
Hægt er að festa myndir sem tákn eða við síðu, efnisgrein eða tákn. Það er einnig hægt að setja myndina í ramma og síðan festa rammann. Hvor aðferðin er valin fer eftir því hvað verið er að sækjast eftir. Hér er lýsing á þeim aðferðum sem hægt er að nota við að festa myndir:
Við síðu
Myndin heldur sér við síðuna sem hún er sett á miðað við spássíurnar. Hún hreyfist ekki þegar texta og fleiri myndum er bætt við eða þurrkað út. Þessi aðferð er nytsamleg þegar myndin þarf ekki að vera sérlega tengd atriði í textanum. Þetta er oft notað þegar verið er að setja saman fréttabréf eða önnur skjöl sem gera miklar kröfur til umbrots, eða við að setja merki fyrirtækis í bréfhaus.
Aðvörun Ef þú ætlar að nota skjal í safnskjali (Master document) þá skaltu ekki festa myndir við síðu því þá koma myndirnar ekki fram í yfirskjalinu.
Við efnisgrein
Myndin er föst við efnisgreinina og færist með henni. Hægt er að staðsetja myndina á spássíu eða annars staðar. Þetta er hentug aðferð sem eins og tafla staðsetur myndir við hlið textans sem á við hana.
Við tákn
Myndin er fest við tákn, en er ekki sett inn í textastrenginn. Hún færist með efnisgreininni en hægt er að staðsetja hana á spássíuna eða annars staðar. Þetta er svipuð aðferð og að festa mynd við efnisgrein, en ekki er hægt að nota hana við teiknihluti.
Sem tákn
Myndin er sett inn í skjalið eins og hvert annað tákn og hefur þar af leiðandi áhrif á línuhæð og línubrot. Myndin færist með efnisgreininni þegar maður bætir við eða eyðir út texta eða myndum. Þessi aðferð er heppileg til að halda skjámyndum í réttri röð í leiðbeiningum (með því að setja þær sem tákn í auðar efnisgreinar) eða til að setja myndir af hnöppum inn í línu.
Við ramma
Ef myndin hefur verið sett í ramma, þá er hægt að festa hana á ákveðnum stað innan rammans. Síðan er hægt að festa rammann við síðu, efnisgrein eða tákn, eftir því sem við á.
Myndum stillt upp
Þegar búið er að ákveða festingu myndar, þá er hægt að skoða uppstillingu myndarinnar miðað við festinguna: þetta kallast að stilla myndinni upp. Það eru sex kostir sem hægt er að velja um: þrír sem stilla henni upp lárétt (til vinstri, í miðju til hægri) og þrír sem stilla henni upp lóðrétt (efst, fyrir miðju, neðst). Ef þú vilt hafa fínni stjórn á uppstillingunni, þá þarft þú að gera það með talglugganum sem sýndur er í mynd 3.Byrjaðu á því að velja viðmiðunarpunkta í valreitunum hægra megin í talglugganum og veldu svo úr valreitunum til vinstri Left, Right eða Center. Ef þú velur gildið From left (eða From top fyrir lóðrétta staðsetningu) þá getur þú skilgreint hversu langt frá vinstri eða efst myndin á að vera. Í dæminu hér fyrir neðan verður efra horn myndarinnar til vinstri sett 3 sentimetra frá vinstri spássíu og efri brún á efri spássíu.
Texti látinn flæða kringum myndir
Stilling á flæði segir til um hvernig texti og myndir tengjast. Nokkrir möguleikar eru í boði:
- Ekkert flæði (No Wrap)
- Hérna er textinn settur fyrir ofan og neðan myndina en ekki til hliðar við hana.
- Síðuflæði og Gæðaflæði (Page Wrap, Optimal Page Wrap)
- Texti flæðir í kringum myndina. Ef myndin er færð á blaðsíðunni, þá lagar textinn sig að henni þannig að plássið hægra og vinstra megin við hana fyllist. Gæðaflæði kemur í veg fyrir að texti komi þeim megin við mynd sem er nær spássíunni.
- Gegnumflæði (Wrap Through)
- Leggur myndina ofan á textann. Textinn er þar með hulinn undir myndinni að einhverju leiti. Gott er að nota gagnsæi með þessari stillingu til að textinn haldi áfram að sjást.
- Í bakgrunni (In Background)
- Svipað og gegnumflæði, nema að myndin er sett undir textann og engin nauðsyn er á að gera hana gagnsæja.
Athugaðu No Wrap kosturinn sem gefinn er í sprettivali myndar er sama og Wrap Off valið í Format > Wrap á valstikunni.
Flæði er yfirleitt valið eftir að mynd er staðsett og fest. Til að setja ákveðið flæði á mynd er þetta gert:
- Veldu mynd með því að smella á hana.
- Hægri-smelltu til að sjá sprettivalið og færðu músabendilinn á Wrap til að sjá flæðimöguleikana. Annar möguleiki er að velja Format > Wrap af valstikunni.
- Veldu það flæði sem þú vilt nota.
Athugaðu Þegar mynd er fest sem tákn, þá er aðeins hægt að stilla fjarlægðina á milli myndarinnar og textans, en ekki er hægt að stjórna flæði.Til að fínstilla flæðikostina, þá opnar maður talgluggann fyrir myndir og velur Wrap flipann eins og sést á mynd 4. Ef þú ert með venjulega mynd, þá getur þú náð í þennan talglugga með því að velja Format > Picture á valstikunni eða með því að hægri-smella og síðan velja Picture af sprettivalinu. Ef um teiknihluti er að ræða, þá er hægt að nálgast Wrap flipann með því að velja Format > Wrap > Edit á valstikunni eða með því að hægri-smella og velja Wrap > Edit af sprettivalinu. Þessum talglugga er skipt upp í þrjá hluta.
Efst er hægt að velja hvernig flæði maður vill fá eins og lýst er hér fyrir ofan, ásamt tveim möguleikum í viðbót sem koma í veg fyrir að textinn fari vinstra megin við mynd (After) eða hægra megin við hana (Before). Spacing hluti gluggans er notaður til að skilgreina bil á milli myndar og texta. Í Options hlutanum er mismunandi innihald eftir því hvernig flæði er valið.
- Ný efnisgrein (First Paragraph)
- Hakaðu við þennan kost ef þú vilt að OOo byrji nýja efnisgrein fyrir neðan myndina, hvort sem textinn gæti flætt í kringum hana eða ekki.
- Í bakgrunni (In background)
- Þessi kostur opnast ef gegnumflæði (Through Wrap) er valið; hann setur myndina í bakgrunn.
- Útlínur (Contour)
- Flæðir textann í kringum upp-settar útlínur frekar en í kringum raunverulegar útlínur myndarinnar. Þessi kostur er aðeins nothæfur þegar Síðuflæði eða Gæðaflæði eru valin.
- Aðeins fyrir utan (Outside only)
- Lætur textann flæða utan við raunverulegar útlínur myndar þó upp-settar útlínur séu tilgreindar á myndinni.
Útlínur stilltar
Þessi valkostur er bara til fyrir myndir. Ef þú velur flæði í kringum teiknihlut, þá býr OOo sjálfkrafa til útlínur sem textinn flæðir í kringum. Hægt er að nálgast Útlínustjórann með því að velja Format > Wrap > Edit Contour eða með því að hægri-smella.
Talglugginn sem sést á mynd 5 opnar með myndina tilbúna. Notaðu tólin sem gefin eru til að teikna í kringum þá hluta myndarinnar sem þú vilt ekki að textinn fari yfir – sá hluti er skyggður á meðan þú vinnur.Einhver reynsla af myndvinnslu er nauðsynleg til að búa til flóknar útlínur; í flestum tilfellum er samt ekki mikil þörf á nákvæmni. Mynd 52 sýnir hvar verið er að teikna í kringum einfalda mynd og sést hvernig línan er dregin í kringum myndina. Þar sést líka að útlínan er langt frá því að vera nákvæm.
Þegar þú ert búinn smellir þú á Apply hnappinn (lítið grænt hak). Ef þú ert ekki ánægður með það sem komið er, þá er hægt að losa sig við það með því að velja útlínuna og síðan ýta á DELETE lykilinn til að eyða henni. Nú er hægt að byrja upp á nýtt. Einnig er hægt að afturkalla síðasta skref eða velja Edit Points hnappinn og lagfæra útlínurnar punkt fyrir punkt.
Sjálfvirknin í AutoContour hnappnum virkar ágætlega þegar um er að ræða einfaldar útlínur. Ef draga á útlínuna í kringum svæði með sama eða svipuðum lit, þá er hægt að velja þetta svæði með dropateljaranum. Veldu þetta tól og smelltu síðan á stað á myndinni með þennan lit. OOo velur sjálfkrafa öll svæði með sama eða svipuðum lit. Hægt er að stilla hversu nálægt liturinn þarf að vera með því að auka eða minnka prósentuhlutfallið í Color Tolerance reitnum (100% = nákvæmlega eins).
Athugaðu Allar röðunaraðferðir sem ræddar hafa verið í þessum kafla eiga líka við um ramma, nema útlínustilling.


