Myndir í Writer
Úr OpenOffice.is
Þegar maður býr til textaskjal í OpenOffice.org Writer, þá er líklegt að maður vilji stundum setja myndir eða annars konar myndræna hluti í það. Myndir eru settar í textaskjöl af ýmsum ástæðum, allt frá því að styðja það sem stendur í textanum – eins og gert er í þessari kennslubók – upp í það að gefa myndræna framsetningu á því sem verið er að skrifa, eins og gert er í dagblöðum.
Myndir í Writer eru af þrem grunn tegundum:
- Myndir, þ.m.t. ljósmyndir, teikningar, skannaðar myndir og annað
- Línuteikningar búnar til með teiknitólum OOo
- Línurit búin til með OOo Chart
Á þessum vef skoðum við fyrri tvær tegundirnar.

