Myndir, töflur, myndrit og annað sett inn

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Myndir í Impress eru meðhöndlaðar á svipaðan hátt og í Writer, þó að Impress hafi mun öflugri aðferðir við að vinna og laga myndir.

Töflur sem tengdar eru í Impress úr Calc halda flestum eiginleikum sínum sem þær hafa í Calc og þess vegna er mögulegt að framkvæma frekar flókna útreikninga og gagnarýni. Öll slík rýni er þó betur framkvæmd í Calc og síðan flutt inn í Impress.

Til að bæta töflureikni inn í glæru er samsvarandi umbrot valið úr Layout listanum á Verkglugganum. Þetta setur merki fyrir töflureikni á miðja glæruna. Til að setja inn gögn og breyta formun töflunnar þarf að opna hana og fara í breytingaham. Það er nóg að tvísmella á rammann með grænu handföngunum til þess.

Einnig er hægt að velja Insert > Spreadsheet af valstikunni. Þá opnast lítill töflureiknir í miðri glærunni. Þegar þetta er gert, þá er töflureiknirinn þegar í breytingarham. Það er einnig hægt að tengja töflureikni inn sem OLE hlut (Object Linking and Embedding).

Til að setja myndrit á glæru þarf að velja samsvarandi umbrot úr Layout listanum á Verkglugganum, eða nota Insert Chart möguleikann.

Impress gefur kost á að setja á glæru alls konar aðra hluti, eins og tónlist, vídeóklippur, Writer skjöl, stærðfræðiformúlur úr Math o.s.frv. og dæmigerð glærusýning getur innihaldið nokkur af þessum atriðum.

Tenglar