Myndatexti settur á mynd

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Hægt er að setja myndartexta á mynd á þrjá vegu: sjálfvirkt, með því að nota Textagluggann eða handvirkt.

Efnisyfirlit

Sjálfvirkur myndartexti

Þú getur stillt OOo þannig að það komi myndartexti sjálfvirkt í hvert sinn sem þú setur inn mynd, töflu eða annað í skjal. Þú getur valið hvaða hlutir fá sjálfkrafa texta, hvaða raðnafn er notað fyrir þá (til dæmis „Tafla“ eða „Teikning“) og staðsetningu textans.

Til að setja upp sjálfvirka myndartexta er þetta gert:

  1. Veldu Tools > Options. Á Options talglugganum smellir þú á + merkið fyrir framan OpenOffice.org Writer til að sjá lista valkosta.
  2. Veldu AutoCaption. Nú sjást valkostir hægra megin á talglugganum. Þar getur þú valið hvað á að fá texta.
  3. Veldu þá hluti sem eiga að fá texta sjálfkrafa og stilltu þau atriði sem þú vilt stilla fyrir hvern.

Ef sjálfvirkur myndartexti er valinn og þú setur inn mynd, þá fer myndin í ramma ásamt myndartexta sem inniheldur sjálfgefið raðnafn fyrir viðkomandi hlut. Settu nú bendilinn í svæðið fyrir textann og ritaðu hann. Þú getur skipt um raðnafn með því að velja það af valmyndarlista.

Athugaðu
Þú getur stillt hvar sjálfvirkur myndartexti á að koma fyrir alla hluti nema
myndir. Texti með myndum getur aðeins komið fyrir neðan þær. Ef þú þarft að
hafa texta fyrir ofan myndina, (t.d. fyrir gagnaútskrift í vísindaskýrslu),
þá verður þú að setja textann handvirkt eins og lýst er hér á eftir.
Ráð
Íslenska orðið „Mynd“ er að sjálfsögðu ekki eitt af þeim orðum sem gefin eru
sem möguleikar, en þeir eru : <None>, Drawing, Illustration, Table, og Text.
Til að bæta íslenska orðinu við er þetta gert:
1. Opnaðu Tools > Options – OpenOffice.org Writer – AutoCaption talgluggann eins
   og lýst var hér fyrir ofan.
2. Í hlutanum sem merktur er Add captions automatically when inserting hakar
   þú við OpenOffice.org Writer Picture. Þá verða kostirnir fyrir myndir virkir.
3. Bættu orðinu Mynd í Category felligluggann með því að rita það yfir það sem
   sést í honum. (Valkostir hverfa ekki af listanum þó það sé ritað yfir þá.)
   Þú getur líka stillt ýmislegt í sambandi við tölusetningu og skiltákn á milli
   nafns og tölu ef þú vilt. Smelltu á OK til að vista.

Talgluggi fyrir myndartexta

Mynd 1: Raðnafn fyrir myndartexta skilgreint
Til að bæta myndartexta við með talglugganum er þetta gert:
  1. Settu myndina inn og veldu hana og veldu síðan Insert > Caption af valstikunni.
  2. Undir Properties á Textatalglugganum (sjá mynd 1) velur þú raðnafn, tölusetningu og skiltákn (Mynd, Arabic (1 2 3), og tvípunkt), eins og sést á mynd 1. Síðan ritar þú textann sjálfan í efsta reitinn. Textinn sem þú ritar kemur þá í reitinn neðst ásamt raðnafninu og tölunni svo þú sjáir hvernig þetta lítur út.
  3. Smelltu á OK. Myndin og textinn með henni eru sett í ramma eins og sést í mynd 54.
Mynd 2: Dæmi um mynd og texta með henni í ramma. Ytri strikin sýna hvar ramminn er. Þau eru venjulega ósýnileg
Ráð
Þú getur ritað hvaða nafn sem þú vilt í Category reitinn. OOo býr þá til
númeraða runu með því nafni.

Myndartexti settur á handvirkt

Ef þú þarft að vista skjal sem .DOC eða flytja út í önnur skjalform, þá er líklegt að þú sjáir að myndartextinn eins og hann var settur inn fyrir ofan hefur horfið. Til að koma í veg fyrir þetta eða til að hafa fleiri möguleika við að setja inn texta, t.d. fyrir ofan mynd en ekki fyrir neðan hana, þá er mögulegt að setja inn texta á tvo vegu:

  • Setja myndina og textann hvort í sína efnisgreinina.
  • Nota töflu.

Settu myndina og textann hvort í sína efnisgreinina

Settu inn mynd í sér efnisgrein og festu hana sem tákn (Anchor as Character). Ýttu á ENTER á lyklaborðinu til að fá nýja efnisgrein fyrir textann.

  1. Í efnisgreinina fyrir textann ritar þú, t.d. Mynd og síðan bil.
  2. Til að númerið komi sjálfkrafa velur þú Insert > Fields > Other (eða CTRL + F2 á lyklaborðinu) og velur Variables flipann.
  3. Veldu Number range í Type listanum. Veldu Figure í Selection listanum og veldu, t.d. Arabic (1 2 3) í Format fellilistanum. Smelltu á Insert hnappinn.
  4. Tala birtist nú á eftir orðinu „Mynd“ í myndartextanum. Nú getur þú ritað skýringartextann sjálfan.

Notaðu töflu

Búðu til töflu með einum dálki og tveim línum. Settu myndina í efri línuna og ritaðu textann í þá neðri – notaðu tvær eða fleiri línur fyrir textann og annað sem honum fylgir. Þessi aðferð er sérlega sniðug þegar um er að ræða mynd með ábendingum.

Tenglar