Mynd breytt
Úr OpenOffice.is
Þegar maður setur inn nýja mynd, þá þarf maður stundum að breyta henni þannig að hún falli betur að skjalinu sem hún er í. Staðsetning myndarinnar með tilliti til textans er rætt í „Myndir staðsettar í texta“. Hér ætlum við að skoða hnappastikuna fyrir myndir, stærðarbreytingar, og kropp og hvernig við getum snúið mynd.
Athugaðu Þó að OOo fylgi ýmis tól sem hægt er að nota til að breyta myndum, þá er yfirleitt best að nota sérstakt myndvinnsluforrit eins og GIMP til að gera það (t.d. til að kroppa, breyta stærð, og laga litagildi) og síðan setja afurðina inn í OOo. (GIMP er opið myndvinnsluforrit sem hægt er að nálgast á http://www.gimp.org/downloads/).
Efnisyfirlit |
Hnappastika fyrir myndir
Þegar maður setur inn mynd eða velur mynd sem búið er að setja inn, þá birtist sérstök hnappastika fyrir myndvinnslu. Þessi stika getur verið hvort sem er fljótandi eða dokkuð. Á mynd 1 er stikan sýnd fljótandi. Tvær aðrar stikur opnast út úr henni: stika með grafískum síum, sem hægt er að rífa af og láta fljóta sér, og litastikan, sem opnast sem fljótandi stika.
Með þessum stikum er hægt að breyta myndum á ýmsan hátt, hagræða þeim og lagfæra til að fá sérstök áhrif.
Síur
Á Töflu 1 er stutt lýsing á þeim síum sem fyrir hendi eru, en besta aðferðin til að skilja þær er að sjá þær í reynd. Þú skalt gera tilraunir með þessar síur og mundu að þú getur afturkallað allar aðgerðir með því að ýta á CTRL+Z eða ALT+BAKK á lyklaborðinu eða með því að velja Edit > Undo.
|
1 úr skrá 2 Sía 3 Myndhamur 4 Litur 5 Gegnsæi |
6 Velta lárétt 7 Velta lóðrétt 8 Myndræn eigindi 9 Umsnúa litum 10 Jafna |
11 Yfirlýsing 12 Öldrun 13 Kolaskissa 14 Upphleypt 15 Mósaík |
16 Málun 17 Popp list 18 Skerpa 19 Fjarlægja rusl 20 Rauður |
21 Grænn 22 Blár 23 Lýsing 24 Skerpa 25 Gamma |
Mynd 2 sýnir nokkur dæmi um hvernig hægt er að breyta mynd með hnappastikunni
Tafla 1: Grafískar síur og áhrif þeirra:
Litur
Notaðu þennan talglugga til að breyta hverjum RGB litahluta myndar (rautt, grænt, blátt) ásamt lýsingu, skerpu og gamma myndarinnar. Ef niðurstaðan er ekki rétt, þá er hægt að ýta á CTRL+Z á lyklaborðinu til að fá upphaflegt útlilt aftur.
Gegnsæi sett á hlutinn
Breyttu prósentutölunni í Gagnsæisboxinu
á hnappastiku myndarinnar til að gera myndina gagnsærri. Þetta er sérlega gagnlegt þegar maður er að búa til vatnsmerki eða að setja mynd sem bakgrunn
Notkun á formunarstikunni og talglugga myndar
Þegar mynd er valin, þá er hægt að breyta ýmsum atriðum varðandi hana með þeim tólum sem finna má á Formunar hnappastikunni og í talglugganum sem opnast þegar hægri-smellt er á mynd og kosturinn Picture valinn (sjá mynd 44). Til dæmis er hægt að búa til ramma utanum myndina, velja stíl og lit, eða (í Borders flipa gluggans) setja skugga undir myndina.
Mynd kroppuð
Ef maður vill bara nota hluta myndar í skjali, þá er líklegt að maður vilji kroppa hana (klippa hluta hennar af). Til að kroppa mynd þarf að velja hana, hægri-smella á hana og velja Picture af valmyndinni sem kemur upp. Í talglugga myndvinnslu er Crop flipinn valinn (sjá mynd 3).Í Kropp talglugganum er hægt að stýra eftirfarandi atriðum:
- Keep scale / Keep image size kostir: Þegar Keep scale er valið (sjálfgefið), þá breytir kroppið ekki skala myndarinnar og hún minnkar um það sem skorið er af. Þegar Keep image size er valið, þá helst sú stærð sem á myndinni er. Þannig stækkar í raun það sem eftir situr þegar búið er að kroppa þegar klippt er af, eða minnkar ef bætt er við, þannig að ummál myndarinnar helst hið sama.
- Left, Right, Top, og Bottom: Virkni þessara reita breytist eftir því hvor kosturinn Keep scale og Keep image size er valinn. Í báðum tilfellum er tala rituð inn í reitinn. Myndin kroppast þá um þetta mál. Til dæmis ef talan 3cm er sett inn í Left reitinn, þá skerast 3 sentimetrar af vinstri jaðri myndarinnar.
- Þegar Keep scale er valið, þá stækkar afgangurinn af myndinni einnig um 3 sentimetra (jákvæð tala í reitnum) eða minnkar (neikvæð tala í reitnum), þannig að ummál myndarinnar helst hið sama.
- Athugaðu að Width og Height gildin breytast þegar þú setur inn stærðir á þennan hátt. Þú getur notað frímerkið við hliðina á reitunum til að fylgjast með hversu mikið þú kroppar.
Stærð myndar breytt
Það er hugsanlegt, og reyndar frekar líklegt, að myndin sem þú setur inn í skjalið passi ekki alveg vegna þess að hún er of stór eða of lítil. Í þeim tilfellum þarft þú að breyta stærð myndarinnar.
- Smelltu á myndina, ef þarf, til að fá litlu grænu handföngin.
- Settu bendilinn yfir eitt af þessum handföngum. Bendillinn breytist og sýnir hvert þú getur teygt myndina.
- Smelltu og dragðu handfangið. Þannig breytir þú stærð myndarinnar.
- Slepptu músarhnappnum þegar þú ert ánægður með nýju stærðina.
Handföngin á hornunum stjórna bæði breidd og hæð myndarinnar í einu, en hin fjögur handföngin breyta þessum málsetningum tveim og tveim í einu.
Ráð Til að halda upphaflegum hlutföllum myndarinnar, þá skaltu halda niðri SHIFT lyklinum á lyklaborðinu þegar þú smellir og dregur. Athugaðu að sleppa músarhnappnum á undan SHIFT lyklinum.Athugaðu að ef þú breytir stærð á rastamynd (bit-mapped) mynd, þá hefur það óæskileg áhrif á upplausn myndarinnar og hún verður að einhverju leiti óskýr. Það er betra að stækka slíka mynd í myndvinnsluforriti ef hægt er áður en þú setur hana í skjalið þitt.
Á mynd 4 sést hvernig mynd breytist þegar hún er stækkuð eða minnkuð.
Til að stjórna stærðarbreytingum betur, þá er gott að nota Crop flipann eða Type flipann í talglugga myndar. Á Crop flipanum er hægt að stýra þessum atriðum, eins og lýst er hér fyrir ofan.
- Scale Width og Height: settu inn í prósentum stærðarbreytingarnar sem þú vilt fá fram. Stærð myndarinnar breytist í samræmi við það. Til að hlutföll myndarinnar breytist ekki þurfa bæði gildin að vera hin sömu.
- Image size: skilgreindu stærð myndarinnar í þeim mælieiningum sem þér líkar. Myndin stækkar eða minnkar um þau gildi.
- Original size hnappurinn: ef smellt er á hann, þá fær myndin aftur upprunalega stærð.
Á Type flipa Myndartalgluggans velur þú Relative kostinn til að skipta á milli prósentuhlutfalls og raunstærðar. Til að breyta stærð jafnt skaltu haka við Keep ratio kostinn. Eins og á Crop flipanum er hægt að smella á Original Size hnappinn til að fá aftur upprunalega stærð.
Mynd snúið
Í Writer er ekki tól til að snúa mynd, en það er einfalt að vinna sig framhjá því:
- Opnaðu nýtt Draw eða Impress skjal.
- Settu þar inn myndina sem þú vilt snúa. Þú getur notað einhverja þá aðferð sem lýst er framar í þessum kafla, þó allar valmyndir og hnappar séu ekki alveg eins.
- Veldu myndina. Síðan getur þú notað Teiknistikuna (venjulega sýnd neðst í glugganum) til að velja Rotate
hnappinn .
- Snúðu myndinni eins og þú vilt. Notaðu rauðu handföngin á hornum myndarinnar og hreyfðu músina í þá átt sem þú vilt snúa. Sjálfgefið er að myndin snúist um miðju sína (sýnt með svörtum krosshárum), en þú getur breytt snúningspunktinum með því að færa krosshárin á þann stað sem þú vilt.
- Veldu myndina með því að ýta á CTRL+A á lyklaborðinu og afritaðu hana með CTRL+C.
- Farðu nú aftur í Writer, smelltu með músinni þar sem þú vilt fá myndina og settu hana inn með CTRL+V.
Ráð Til að takmarka snúning við 15 gráður í einu er hægt að halda niðri SHIFT lyklinum á lyklaborðinu á meðan myndinni er snúið.
Aðrar stillingar
Á talglugga mynda eru átta flipar. Við skoðuðum Crop flipann annars staðar og Type flipanum verður lýst í kaflanum „Myndir staðsettar í texta“. Aðrir flipar hafa þessa virkni:
- Options - valkostir: Notaðu þenna flipa til að gefa myndinni lýsandi nafn (sem þú vilt að sjáist í Lóðsinum), aukatexta sem sést þegar bendillinn vokar yfir myndinni og til að verja suma eiginleika myndarinnar fyrir breytingum af slysni. Einnig er hægt að koma í veg fyrir að myndin prentist með því að taka viðeigandi hak af.
- Borders - rammar: Notaðu þenna flipa til að búa til ramma í kringum myndina. Kostirnir eru þeir sömu og eru notaðir til að setja ramma utanum efnisgreinar og töflur. Einnig er hægt að setja skugga undir myndina ef maður vill.
- Background - bakgrunnur: Notaðu þennan flipa til að breyta bakgrunni myndarinnar. Þetta virkar þó aðeins fyrir myndir með glæran lit.
- Hyperlink - stiklur: Notaðu þennan flipa til að setja stiklu á Internetið á myndina. Einnig er hægt að setja stiklur á hluta myndarinnar þannig að bara þeir hlutar virki sem stikla.
- Picture - mynd: Notaðu þennan flipa til að velta myndinni og til að sjá hvar hún var upphaflega geymd ef hún er tengd en ekki fest.
- Macro - fjölvar: Gefur þér möguleikann á að tengja fjölva við myndina. Hægt er að velja fjölva sem fylgja forritinu eða búa til þína eigin.
Mynd eytt
Til að eyða mynd:
- Smelltu á myndina til að velja hana ef þarf til að grænu handföngin sjáist.
- Ýttu á DELETE á lyklaborðinu.


