Mynd bætt í Myndasafn
Úr OpenOffice.is
(Tilvísað frá Mynd bætt í Gallerý)
Þú vilt hugsanlega bæta mynd í Gallerýið sem þú notar oft, til dæmis lógó fyrirtækis. Þá er auðvelt að setja þessa sömu mynd í annað skjal seinna.
Til að setja mynd í Gallerýið er þetta gert:
- Opnaðu Gallerýið
- Opnaðu þemað sem þú vilt geyma myndina í eða búðu til nýtt þema. Athugaðu að þú getur bara sett myndir í „My Theme“ eða annað þema sem þú hefur búið til. Þessi þemu er auðkennd með grænum lit á táknmyndinni. Ekki er hægt að bæta við mynd í þema með öðrum lit. Til að búa til nýtt þema:
- Smelltu á New Theme hnappinn fyrir ofan listann yfir þemu. Eiginleikagluggi fyrir nýtt þema opnast; hann er svipaður í útliti og glugginn á mynd 1.
- Veldu General flipann (ekki sýndur) og ritaðu nafn fyrir nýja þemað í textareitinn.
- Veldu Files flipann, slepptu skrefi 3. og haltu áfram í skrefi 4.
- Hægri-smelltu á þemað sem þú vilt nota og veldu Properties í valmyndinni sem upp kemur. Þá opnast gluggi sem þú getur notað til að velja skrárnar sem þú vilt bæta við.
- Smelltu á Find Files hnappinn á Files flipanum. Nú opnast talgluggi þar sem þú finnur slóðina að skránum þínum.
- Þú getur ritað slóðina að skránni í Path textareitinn eða fundið rétta staðinn í möpputrénu þínu. Notaðu valmyndina undir File type reitnum til að takmarka leitina við ákveðin skjalform.
- Smelltu á Select hnappinn til að hefja leitina. Listi yfir myndaskrár er sýndur í glugganum. Þú getur aftur notað File type síuna til að takmarka leitina.
- Veldu skrárnar sem þú vilt setja inn. Ef þú vilt velja fleiri en eina, þá getur þú haldið niðri CTRL lyklinum á lyklaborðinu og smellt á hverja á fætur annarri.
- Smelltu í lokin á Add.
- Þegar þú ert búinn að vinna með Gallerýið getur þú smellt á táknmyndina fyrir það
til að loka því.
Athugaðu Þessi aðferð gerir ráð fyrir því að myndaskrárnar sem þú vilt setja í Gallerýið séu þegar til. þú gætir þurft að sækja myndir eða búa þær til á tölvunni þinni ef þú átt ekki nógu góðar myndir.
Athugaðu Find Files leitar að myndaskrám í öllum undirmöppum þeirrar möppu sem opnuð er í skefi 5, svipað og gerist í leitaraðferðum ýmissa stýrikerfa.

