Lóðsinn notaður
Úr OpenOffice.is
Lóðsinn (Navigator) sýnir alla hluti sem skjal inniheldur, flokkaða saman. Til dæmis í Writer sjást fyrirsagnir (Headings), töflur (Tables), textarammar (Text frames), glósur (Notes), myndir (Graphics), bókamerki (Bookmarks) og annað (sjá mynd 1).
Í Calc sjást blöð (Sheets), svæðanöfn (Range Names), gagnasvæði (Database Ranges), myndir (Graphics), teiknihlutir (Drawing Objects) og annað. Í Impress og Draw sýnir hann glærur (Slides), myndir (Pictures) og annað. Til að sjá hvaða atriði eru undir hverjum flokki er nóg að smella á + merkið fyrir framan nafn flokksins.Til að opna Lóðsinn er smellt á táknmynd hans
á Standard hnappastikunni, eða ýtt á F5 lykilinn á lyklaborðinu, eða valið Edit > Navigator á valstikunni. Hægt er að dokka Lóðsinn á hvora hlið OOo gluggans sem er eða láta hann fljóta (sjá „Gluggar og hnappastikur dokkaðar og settar á flot“).
Til að fela listann yfir flokkana og sjá aðeins hnappastikuna efst er smellt á List Box On/Off hnappinn
. Smelltu á þennan hnapp aftur til að sýna listann.
Lóðsinn gefur nokkra þægilega möguleika til að ferðast um skjal og finna atriði í því:
- Þegar atriði í flokki sjást, þá er nóg að tvísmella á eitthvert atriðið til að fara beint á það í skjalinu. Auðveldara er að finna atriði ef þeim er gefið nafn þegar þau eru búin til í stað þess að láta OOo gefa þeim sjálfgefin nöfn á borð við graphics1, graphics2, Table1, Table2, og svo framvegis – sem fylgir ekki endilega röð viðkomandi atriða í skjalinu. Ef þú vilt bara sjá innihaldið í einstökum flokki, þá er smellt á hann til að velja hann og síðan smellt á Content View hnappinn
. Aðeins atriði í þessum flokki sjást þá í listanum þar til smellt er á hnappinn aftur.
- Smelltu á
(annar hnappur frá vinstri í efri hnapparöð) til að sýna stýringarstikuna (sjá mynd 2). Hér er hægt að velja einn flokkinn og nota svo Fyrri (Previous) og Næsti (Next) hnappana til að stökkva frá einu atriði á annað. Þetta er sérlega nytsamlegt til að finna bókamerki og atriði í orðalistum sem er erfitt að sjá. Nöfn hnappanna (sem sjást í vísbendingakassanum) breytast eftir því hvaða flokkur er valinn; til dæmis Next Graphic eða Next Bookmark.
- Til að stökkva á tiltekna blaðsíðu í skjali er númer hennar ritað í reitinn efst í Lóðsinum.
Nokkrar tilraunir með aðra hnappa sýna hvernig þeir virka. Nánari lýsingu á tilteknum atriðum er að finna í kaflanum um Writer.

