Kafli 7 – Unnið með stíla
Úr OpenOffice.is
Þetta er kafli 7 úr OpenOffice.org 3 Writer Guide. Samsvarandi PDF skrá á ensku er hægt að finna á skjölunarvef OpenOffice.org.
* Búa til sérsniðna (nýja) stíla * Vinna með málsgreinastíla * Vinna með skilyrta málsgreinastíla * Vinna með stafastíla * Vinna með rammastíla * Vinna með síðustíla * Dæmi: Síðuröðun í bókarkafla * Vinna með listastíla * Dæmi: Búa til einfaldan listastíl
Inngangur
Kafli 6 (Inngangur að stílum) fjallaði um grunnatriði við notkun, breytingar og umsjón með stílum. Þessi kafli hér er hugsaður til tess að gefa ítarlegri lýsingar á því hvernig hægt sé að búa til og breyta stílum með því að nota hina mismunandi flipa sem tiltækir eru í Stílstjórnunarglugganum. Þú munt læra hvernig þessir valmöguleikar hafa áhrif á útlit stíla og hvernig hægt sé að nota þá til að auðvelda sér vinnuna. Tekin eru dæmi og gefin góð ráð.
Fliparnir í Stílstjórnunarglugganum eru margir þeir sömu og eru notaðir við handvirka sníðingu texta, þannig að þú getur stuðst við þennan kafla til að læra að forma textann handvirkt (þú myndir ekki þurfa að læra það sérstaklega ef þú notar stíla).

