Kafli 1 – Inngangur að Writer
Úr OpenOffice.is
Hvað er Writer?
Writer er ritvinnsluhluti OpenOffice.org (OOo). Auk þess sem venjulega má finna í flestum ritvinnslukerfum (stafesningarorðabók, samheitaorðabók, orðskipting, sjálfvirk leiðrétting, finna og skipta, sjálfvirk uppsetning á efnisyfirliti og atriðisorðaskrá, samsteypa og fleira) eru eftirfarandi mikilvægu atriði fastur hluti Writer:
- Sniðskjöl og stílar
- Umbrot á síðum, þ.m.t. rammar, dálkar og töflur
- Festing eða tenging í myndir, gagnatöflur og aðra hluti
- Innbyggð teiknitól
- Safnskjöl sem sameina stök skjöl í eitt
- Eftirlit með breytingum við endurskoðun
- Samskipti við gagnagrunna, þ.m.t. heimildagrunnur
- Útflutningur í PDF skjöl með bókamerkjum
- Og ýmislegt fleira
Stílar eru grunnurinn að notkun Writer. Með því að nota stíla er auðvelt að setja upp skjöl og umbrjóta þau á samræmdan hátt með lágmarks fyrirhöfn. Stíll er uppsettir formunarkostir undir einu nafni. Í Writer eru skilgreindar nokkrar tegundir stíla til notkunar við mismunandi tækifæri: stafi, efnisgreinar, síður, ramma og lista. Oft notar maður stíla án þess að gera sér grein fyrir því. Notkun stíla er lýst betur í kafla 6 (Inngangur að stílum) og kafla 7 (Unnið með stíla).
Öðrum atriðum sem nefnd eru hér að ofan eru gert góð skil í öðrum köflum í þessar handbók.

