Innfylliform notuð

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Venjulegt ritvinnsluskjal inniheldur upplýsingar: bréf, ritgerð eða bæklingur, til dæmis. Stundum viljum við geta búið til texta sem lesandi á að geta breytt á einhvern hátt. Til þess getum við notað Innfylliform. Innfylliform hafa ákveðna hluta sem hægt er að breyta og aðra sem ekki er hægt að breyta. Til dæmis ef þú vilt búa til spurningalista sem er með inngang, spurningar og eyður sem lesandinn á að fylla inn í þá getur þú notað Innfylliform. Innfylliform nýtast á þrenna vegu:

  • Sem einfalt ritvinnsluskjal fyrir móttakanda, eins og til dæmis spurningalisti sem á að fylla út og senda aftur.
  • Til að tengja í gagnagrunn og leyfa notanda að setja inn upplýsinga. Til dæmis til að taka á móti pöntun.
  • Til að skoða upplýsingar sem eru geymdar í gagnagrunni. Til dæmis listi yfir bækur á bókasafni.

Writer býður upp á margar leiðir til að setja inn í Innfylliform eins og til dæmis, krossa, valspurningar, textakassa, og margt fleira.

Tenglar