Hvað er Draw?
Úr OpenOffice.is
Draw er teikniforrit sem vinnur með vektor grafík. Með því fylgja mörk öflug tól sem gera manni kleyft að búa til alls konar grafík. Vektor grafísk forrit geyma og sýna teikningu sem á vektor formi (tveir punktar og strik) frekar en safn myndpunkta (pixela: punkta á skjá). Auðveldara er að vista og skala vektor myndir.Draw er fullkomlega samhæft inn í OpenOffice.org pakkann og því er mjög auðvelt að nota myndir úr því í öðrum forritum hans. Til dæmis, ef þú býrð til mynd í Draw, þá þarf ekki annað, til að nota hana í Writer, en að bara afrita og líma. Það er líka hægt að vinna í og breyta teikningum úr Writer og Impress með undirsetti tóla og aðgerða úr Draw.
Notkunargildi Draw er vítt og yfirgripsmikið. Þó það hafi ekki verið hannað til að slá út þekktum myndvinnslu- og teikniforritum, þá inniheldur Draw flesta af þeim eiginlekum og teiknitólum sem dýr teikniforrit hafa, sem fylgja öðrum forritapökkum.
Nokkur dæmi um aðgerðir geta hugsanlega kveik í forvitni þinni: lag-stjórnun, grind með segulmagnaða punkta, málsetning, tengi til að búa til skipurit, 3D aðgerðir sem gera manni kleyft að búa til litlar þrívíðar myndir (með áferð og lýsingaráhrifum), og Bézier kúrvur, svo fátt eitt sé nefnt.

