Hvað er Calc?
Úr OpenOffice.is
Calc er töflureiknirinn í OpenOffice.org (OOo). Töflureiknir líkir eftir vinnublaði í tölvunni. Hægt er að rita gögn á þetta blað – venjulega töluleg gögn – og síðan vinna með þau til að fá vissar útkomur, raða þeim upp og skipuleggja, eða sýna upplýsingar með myndriti.
Að auki er hægt að setja gögn inn í Calc og síðan nota eins konar „Hvað ef...“ uppsetningar til að breyta þessum gögnum og skoða niðurstöðurnar án þess að þurfa að setja inn algerlega nýtt sett af gögnum.

