Hjálp:Breyta

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Efnisyfirlit

Almennt um texta

Helst ætti að skrifa allan texta í OOoWriter og yfirfara með íslensku stafsetningarleiðréttingunni áður en hann er settur inn. Til vara er stór kostur að nota Firefox vafrann og vera búin/n að setja upp íslensku orðabókarviðbótina. Það er gert með því að heimsækja "Add-ons" vef Firefox, fara í "Dictionnaries & Language Packs" og finna íslensku orðabókina. Þetta er ekki eiginlegt stafsetningarforrit, rangt stafsett orð í breytingareitum verða undirstrikuð með rauðu, það er komið með uppástungur, en maður getur þurft sjálfur að leiðrétta orð.

Fjallað er um þýðingar á hugtökum í viðmótum OOo forrita á síðunni Þýðingar á hugtökum, einnig eru tenglar á ýmis orðasöfn hér.

Að búa til nýja síðu

Það eru nokkrar aðferðir til að búa til nýjar síður:

  • Búa fyrst til tengil inn á nýju síðuna, smella síðan á rauða tengilinn sem myndast þegar síðan hefur verið vistuð.
  • Slá inn í vafrann staðsetningu væntanlegrar síðu, t.d. hefði þessi síða verið búin til með http://www.openoffice.is/wiki/index.php5?title=Hjálp:Efnisyfirlit, smella síðan á breytingaflipann og byrja að setja inn efni.
  • Í sumum tilfellum gefur leit að síðu sem ekki er til færi á að búa til viðkomandi síðu.
  • Ekki gleyma að flokka síðuna, hvernig það er gert er sýnt hér að neðan.

Þegar efni hefur verið sett inn ætti að forskoða síðuna áður en hún er vistuð. ATH: það geta verið tímamörk á því hversu lengi maður helst innskráður án þess að gefa skipanir í kerfinu (að pikka texta inn í breytingareitinn telst ekki virkni inni í kerfinu, það er virkni á viðkomandi tölvu); þess vegna er gott að forskoða alltaf öðru hvoru.

Að breyta síðum

Til að breyta síðu, þarf einfaldlega að smella á breytingaflipann sem birtist á hverri síðu. Ef einungis á að eiga við ákveðinn hluta síðu, þá er oft breytingatengill hægra megin við hvern efnishluta. Í forminu sem birtist sést sá texti sem þegar er til staðar. Þegar lokið hefur verið við breytingar eða viðbætur er skynsamlegt að biðja um forskoðun á síðunni og ef allt er í lagi, að vista þá síðuna. Ef verið er að breyta síðu sem einhver annar hefur verið að vinna í þá er góður siður að setja athugasemd í breytingaágripið neðst. Einnig er hægt að stofna "Spjall" um síðuna, það er gert með flipa efst.

Wiki-kóðatákn í síðum

Þegar síðum er breytt á kvikusíðum (wiki) er oftast stuðst við hnappana á stikunni ofan við textareitinn. Hlutverk þeirra er að setja inn í texta ýmis merki, sem aftur stýra því hvernig viðkomandi texti er birtur. Hér er um að ræða tákn sem stýra stafagerð, millifyrirsögnum og öðru varðandi útlit, en einnig tákn sem afmarka tengla eða setja inn myndir. Meiri upplýsingar um stikuna eru á MediaWiki vefnum, meðal annars um hjálpartól fyrir Firefox vafrann.

Breytingastikan - skýringar á hnöppum eru í texta
  1. Feitletrun texta
  2. Skáletrun texta
  3. Setja inn tengil á síðu innan kvikuvefsins
  4. Setja inn tengil á síðu á öðrum vef
  5. Setja inn millifyrirsögn
  6. Setja inn mynd, meira um það hér
  7. Setja inn aðrar margmiðlunarskrár
  8. Setja inn LaTex formúlu
  9. Setja inn "nowiki" merki, notað til að sýna wiki-kóða
  10. Setja inn notandanafn sitt, ásamt tíma/dagsetningu
  11. Setja inn lárétta línu á síðu


Bæði er hægt að staðsetja bendilinn í línu og smella á viðkomandi hnapp til að fá táknin með sýnistexta, en einnig velja texta og ýta síðan á hnappinn, valdi textinn verður þá umkringdur merkjunum. Æfingin skapar meistarann...

Varast skyldi að skemma þessi tákn að óathuguðu máli: það getur komið í veg fyrir að síðan birtist rétt. Til dæmis var þessi feitletraði texti afmarkaður með ' ' ' merkjum fyrir framan og aftan; það væri óheppilegt ef að annað merkjasettið myndi hverfa við breytingar á síðunni.

Hjálp:Sandkassi er síða sem hægt er að nota til að prófa ýmsar merkingar á kvikunni.

Þegar fólk vinnur mikið við innsetningu á kvikutexta, getur verið fljótlegast að læra þessar táknasamsetningar; þær eru ekki svo margar. Upplýsingar um þessi tákn er hægt að finna hér.

Að flokka síðu

Til að setja síðu í ákveðinn flokk er hornklofamerki eins og hér að neðan skeytt efst á síðuna, ofan við allan texta. Helstu flokkarnir eru eftirfarandi:

  • Writer - [[Flokkur:Writer]]
  • Calc - [[Flokkur:Calc]]
  • Impress - [[Flokkur:Impress]]
  • Draw - [[Flokkur:Draw]]
  • Base - [[Flokkur:Base]]
  • Formula - [[Flokkur:Formula]]
  • OOo á íslensku - [[Flokkur:Íslenska]] - íslenskustuðningur Openoffice.org
  • Öll OOo forritin - [[Flokkur:Almennt]] - efni sem á við um allan Openoffice.org forritapakkann

Hægt er að sjá alla flokka í notkun hér.

HTML merki í síðum

Jú, það má nota ákveðin HTML-merki í wiki-kóða. Yfirlit um þau er að finna hér:

Notkun mynda með texta

Sérstök hjálparsíða með leiðbeiningum um innsetningu mynda er hér.

Tenglar