Haus og fótur
Úr OpenOffice.is
Haus (e.header) nefnist sá hluti skjals sem staðsettur er efst á síðum; fótur er birtur neðst á síðum. Haus á skjali er yfirleitt notaður til þess að birta titil eða kaflaheiti í skjali.
Í OpenOffice ráða síðustílar (e. page styles) útliti á bæði haus og fæti þannig að allar síður sem nota sama síðustílinn birta samskonar haus. Hér verður sýnt hvernig haus er settur á skjal sem notast við sjálfgefinn (e. default) síðustíl.
Til að setja inn haus er smellt á Insert > Header > Default eins og sjá má hér að neðan. Undirvalseðillinn birtir alla þá síðustíla sem viðkomandi skjal inniheldur.
Í þessu dæmi verður notast við Default valkostinn til þess að virkja hausinn á einungis þeim síðum sem nýta þann síðustíl. Á sama hátt er fótur settur í skjalið með því að velja Footer valkostinn í Insert valseðlinum.
við þessa aðgerð verður til svæði efst á síðunni þar sem hægt er að setja inn texta og myndefni sem birtist á öllum síðum.
Til þess að setja í haus algenga hluti eins og titla, kaflaheiti eða blaðsíðutöl er einfaldast að nota svæði (e. fields). Þegar sá hátturinn er hafður á uppfærist haus og fótur sjálfkrafa þegar breytingar eru gerðar á skjalinu.
Nánar er fjallað um svæði í kafla 14 en við hæfi er að taka einfalt dæmi. Til þess að setja titil skjals í haus er:
- Valið File > Properties > Description, skráðu titil á skjalið í Title reitinn og smelltu á OK til að staðfesta.
- Settu haus á skjalið (Insert > Header > Default).
- Staðsettu bendilinn í haus skjalsins.
- Veldu Insert > Fields > Title. Titill á nú að birtast á gráum bakgrunni (sem birtist ekki við útprentun).
- Til þess að titlinum á öllu skjalinu er vaið File > Properties > Description.



