Glugginn í Impress

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita
Mynd 1: Impress glugginn
Aðalglugginn í Impress (sjá mynd 1) hefur þrjá hluta: glærugluggann, vinnusvæðið og verkgluggann. Þar að auki er hægt að sjá og fela margar tólastikur á meðan maður býr til glærusýningu.
Ráð
Hægt er að láta glærugluggann og verkgluggann hverfa með því að smella
á litla X hnappinn í efra horninu hægra megin. Einnig er hægt að fela eða
sýna þessa glugga með því að nota View > Slide Pane eða View > Tasks Pane.

Efnisyfirlit

Glæruglugginn

Á glæruglugganum sér maður smámyndir af öllum glærunum í sýningunni í þeirri röð sem þær koma til með að sjást. Ef smellt er á glæru, þá er hún valin og opnast í vinnusvæðinu. Á meðan hún er þar er hægt að gera breytingar á henni.

Hægt er að gera ýmislegt við glærur í glæruglugganum:

  • Bæta við nýjum glærum í safnið á eftir þeirri fyrstu.
  • Fela glæru þannig að hún sjáist ekki í sýningunni.
  • Eyða glæru úr sýningunni ef ekki er lengur þörf fyrir hana.
  • Endurnefna glæru.
  • Afrita eða færa efni af einni glæru á aðra (copy og paste, eða cut og paste).

Það má einnig framkvæma þessar aðgerðir þó það séu til skilvirkari aðferðir við það:

  • Breyta skiptingum á eftir valinni glæru eða á eftir hverri glæru í hópi margra sem hafa verið valdar saman.
  • Breyta röð glæra í sýningunni.
  • Breyta útliti glæra (nýr gluggi opnast sem gerir manni kleift að sækja eigin hönnun á útliti.)
  • Breyta uppsetningu margra glæra í einu (þá þarf að nota umbrots-hluta (Layout) verkgluggans.)

Verkglugginn

Í verkglugganum eru fimm hlutar.

Uppsetningar (Master Pages)
Hér skilgreinir þú síðustíl fyrir framsetninguna þína. Með Impress fylgja 28 uppsetningar. Ein þeirra – Default – er tóm, en hinar hafa bakgrunna.
Ráð
Ýttu á F11 lykilinn til að opna Styles and Formating gluggann, en þar getur
þú breytt stílunum sem eru í uppsetningunni þannig að þær henti þér. Þetta
er hægt að gera hvenær sem er.
Umbrot (Layout)
Tuttugu tilbúin umbrot eru sýnd. Þú getur valið það umbrot sem þú vilt, notað það eins og það er eða breytt því eins og hentar þér. Þegar þetta er ritað geta notendur ekki búið til umbrot.
Töfluhönnun (Table Design)
Ellefu tilbúnar töflur eru gefnar í þessum glugga. Það er að auki hægt að breyta útliti þessara tafla með því að sýna eða fela vissa dálka og línur eða samlita annan hvern dálk eða línu.
Atriðaskipti (Custom Animation)
Hægt er að láta atriði koma í ljós á ýmsan hátt og það er langur listi yfir þessi skipti. Það er hægt að bæta mörgum svona skiptum á glæruna og það er líka hægt að breyta þeim eða taka þær af síðar.
Glæruskipti (Slide Transition)
Fimmtíu og sex glæruskipti fylgja með forritinu, þar með talið engin skipti (No Transition). Hægt er að velja skiptihraðann (hægt, meðalhratt og hratt). Einnig er hægt að velja hvort skiptin verða sjálfkrafa eða hvort það þarf að smella til að setja þau af stað og hversu lengi maður vill að viðkomandi glæra sjáist (virkar bara ef skipti er sjálfvirk).

Vinnusvæðið

Á Vinnusvæðinu eru fimm flipar: Venjulegt (Normal), Útlínur (Outline), Glósur (Notes), Dreifildi (Handout), og Glæruraðari (Slide Sorter). Þessir fimm flipar eru kallaðir Skoðunarhnappar (View buttons). Það eru líka margar hnappastikur sem hægt er að nota á meðan maður setur saman glærur: hægt er að sýna þær með því að smella á þær undir View > Toolbars. Vinnusvæðið er undir skoðunarhnöppunum. Þarna setur maður saman það sem á að sjást á glærunni

Hver skoðun er hugsuð til að gera ýmis verk auðveldari. Hér er samantekt:

  • Venjuleg skoðun er notuð til að búa til einstakar glærur. Þessi skoðun er líka notuð til að hanna útlit á glærur og setja inn texta, myndir og skipti.
  • Útlínuskoðun sýnir titla á glærum og atriðum, doppulista og tölulista fyrir hverja glæru. Hér er hægt að raða atriðum upp á glærur og á milli glæra, breyta þeim og laga og setja inn nýjar glærur.
  • Glósuskoðun gerir þér kleift að setja inn glósur á glærurnar. Þessar glósur sjást ekki þegar glærurnar eru sýndar.
  • Dreifildaskoðun gefur manni færi á að prenta út glærurnar handa áhorfendum. Hægt er að prenta eina, tvær, þrjár, fjórar eða sex glærur á blað með því að nota Umbrot (Layout) í Verkglugganum (Tasks). Hægt er að raða glærunum að vild á blaðið í þessari skoðun með því að draga þær til með músinni.
  • Glæruraðarinn sýnir smámynd af hverri glæru í réttri röð. Hægt er að nota hann til að raða glærunum upp á nýtt, útbúa tímasetta glærusýningu eða setja glæruskipti á milli valinna glæra.

Hnappastikur

Hægt er að sýna eða fela hnappastikur Impress forritsins með því að smella á View > Toolbars og síðan velja af listanum. Þá má líka velja þá hnappa sem sjást á stikunum.

Lóðs

Mynd 2: Lóðsinn
Lóðsinn (Navigator – sjá mynd 2) sýnir alla hluti sem finna má í skjalinu. Hann gefur þægilega aðferð við að fara fram og aftur um skjalið og að finna hluti í því. Hnappurinn fyrir Lóðsinn Lóðs er á Standard hnappastikunni. Hægt er að sjá Lóðsinn með því að velja Edit > Navigator á valstikunni eða með því að ýta á CTRL+SHIFT+F5 á lyklaborðinu.

Lóðsinn er mun auðveldari í notkun ef hverri glæru og öðrum hlutum í skjalinu (myndum, töflum o.s.frv.) eru gefin gagnsæ nöfn í stað þess aðnota sjálfgefnu nöfnin „Slide 1“ og „Picture 1“ sem, sjást á mynd 2.

Tenglar