Glósur settar í skjal

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Notkun á glósum hefur verið bætt í OOo3. Glósur eru nú sýnilegir til hliðar og litaðar eftir þörfum hvers og eins.

Mynd 1: Glósur í OOo
Til að setja glósur inn í texta, þá er ritbendilinn settur inn í textann og smellt á Insert > Note eða ýtt á CTRL+ALT+N á lyklaborðinu. Glósan er tengd textabroti með punktalínu og sýnileg hægra megin við textann. OOo bætir sjálfkrafa við nafni eða skammstöfun þess sem gerir glósuna og tímasetningu. Mynd 1 sýnir dæmi um texta með glósum frá tveim höfundum.

Veldu Tools > Options > User Data til að breyta nafninu í það sem þú vilt að birtist í Author Field í glósunum.

Ef fleiri en einn er að setja inn glósur þá er hægt að breyta litnum á innslaginu eftir því hver höfundurinn er.

Ef hægri-smellt er á glósu, þá kemur upp valmynd þar sem hægt er að eyða viðkomandi glósu, öllum glósum frá sama höfundi, eða öllum glósum í skjali. Í þessari valmynd er líka hægt að forma þann texta sem birtist í glósunum. Hægt er að breyta leturgerð, stærð, eða röðun texta.

Til að fá yfirlit yfir alla glósur í skjali, þá opnar maður Lóðsinn (F5), tvísmellir á Glósur (Notes), og getur þar skoðað þær með því að smella á hverja fyrir sig, bendillinn fer sjálfkrafa á þá glósu sem smellt er á í textaskjalinu. Einnig má hægri-smella á glósu og eytt henni eða breyta.

Það er líka hægt að skoða glósurnar með því að nota lyklaborðið. Maður ýtir á CTRL+ALT+PAGE DOWN til að fara frá einni glósu til annarar og CTRL+ALT+PAGE UP til að fara til baka.

Tenglar