Glærusýning stillt

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Impress færir manni tækin sem þarf til að raða saman og sýna glærusýningu, en þeirra á meðal eru:

  • Hvaða glærur á að sýna og í hvaða röð.
  • Hvort sýningin á að renna sjálfvirkt eða handvirkt.
  • Skiptingar á milli glæra.
  • Hreyfingar á stökum glærum.
  • Gagnvirkni: hvað gerist ef maður smellir á hnapp eða stiklu.

Flest verk sem hafa með samsetningu á glærusýningu að gera, eru best framkvæmd í Röðunarskoðun. Veldu View > Slide Sorter af valstikunni eða smelltu á Slide Sorter flipann efst í vinnusvæðinu. Allar glærurnar þínar sjást þá á vinnusvæðinu. þú gætir þurft að skruna til að sjá þær allar.

Hreyfingar er að finna á Verkglugganum. Þetta er flókið atriði sem lýst er í handbókinni Impress Guide á vef OOo.

Fyrsta glærusýningin þín ætti að hafa sömu skiptingu á öllum glærum. Ef merkt er við On mouse click undir Advance slide, á Slide Transition hluta verkgluggans setur það glæruskiptingu við músarsmell. Það er sjálfgefið, einfalt og þægilegt. Ef þú vilt að glæran sjáist í ákveðin tíma, þá skaltu merkja við Automatically after og svo setja fjölda sekúndna í reitinn fyrir neðan. Smelltu á Apply to all slides til að láta þetta virka á öllum glærum.

Ráð
Á skiptiglugganum er mjög gagnlegt atriði: Automatic preview, eða sjálfvirk forskoðun. 
Hakaðu við þetta.  Þegar þú síðan gerir einhverjar breytingar á skiptingu, þá sést sú
skipting á nýju glærunni.
Tenglar