Glærusýning sýnd

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Til að sýna glærusýningu er nóg að gera eitt af þessu:

Mynd 1: Sýningarstikan
  • Veldu Slide Show > Slide Show.
  • Smelltu á Sýningarhnappinn á Sýningarstikunni (Presentation toolbar - mynd 1).
  • Ýttu á F5 eða F9 á lyklaborðinu.

Ef glæruskipti eru sjálfvirk eftir x sekúndur, þá getur sýningin gengið af sjálfu sér.

Ef glæruskipti eru með músarsmellum, þá gerir þú annað af þessu til að fara af einni glæru yfir á aðra:

  • Notaðu örvalyklana á lyklaborðinu til að fara á næstu glæru eða fyrri.
  • Smelltu með músinni til að fara á næstu glæru.
  • Ýttu á bilslána á lyklaborðinu til að fara á næstu glæru.

Hægri-smelltu hvar sem er á skjáinn til að fá sprettivalmynd þar sem þú getur valið að fara áfram eða afturábak og gert ýmislegt annað í sambandi við sýninguna.

Til að hætta í sýningunni hvenær sem er, líka þegar hún er búin, er nóg að ýta á ESC lykilinn á lyklaborðinu.

Tenglar