Glærur sýndar
Úr OpenOffice.is
Til að sýna glærusýningu er eitt af eftirfarandi gert:
- Ýttu á F5 eða F9.
- Veldu Slide Show > Slide Show á valstikunni.
- Smelltu á Slide Show hnappinn á Presentation hnappastikunni eða Slide Sorter stikunni.
Ef sjálfvirkni er still með Automatically after x seconds, þá er hægt að láta sýninguna renna án afskipta.
Ef glæruskipti eru stillt á On mouse click, þá þarf að gera eitt af eftirfarandi til að fá næstu glæru.
- Ýttu á örvalykil niður eða til hægri, eða Page Down lykilinn á lyklaborðinu.
- Smelltu á vinstri músarhnappinn.
- Ýttu á bilslána á lyklaborðinu.
Til að fara aftur á bak í sýningunni eina glæru í einu er ýtt á örvalykil upp eða til vinstri eða Page Up lykilinn. Til að fá flóknari aðferðir við að fara um sýninguna er hægt að hægri-smella með músinni (sjá hér fyrir neðan).
Sérsniðnar hreyfingar á glærum eru framkvæmdar í ákveðinni röð þegar einhver af ofangreindum aðgerðum er notuð.
Þegar farið er fram hjá síðustu glærunni koma skilaboðin Click to exit presentation... upp. Þá er nóg að smella með músinni eða ýta á einhvern lykil til að fara út úr sýningunni.
Til að fara út úr sýningunni og fara aftur á Impress vinnusvæðið, líka þegar sýningin hefur klárast, er ýtt á ESC lykilinn.
Hægri-smellur notaður til að flakka
Ef glærusýningin inniheldur fleiri en eina glæru, þá er hægt að kalla upp sprettivalmynd með því að hægri-smella hvar sem er á skjáinn (sjá mynd 23). Með þeirri valmynd er hægt að flakka á milli glæra og stilla inn ýmsa aðra kosti. Kostirnir eru:
- Næsta (Next)
- fer á næstu glæru í röðinni.
- Fyrri (Previous)
- Fer á næstu glæru á undan í röðinni.
- Fara á glæru (Go to Slide)
- Sýnir undirvalmynd sem sést á myndinni. Valkostir á þeirri valmynd eru meðal annars Fyrsta glæra (First slide), Síðasta glæra (Last Slide), eða hvaða glæra sem er í sýningunni. Hér sérðu hvers vegna það getur verið hjálplegt að gefa glærum nöfn með merkingu, en ekki bara láta þær heita Slide 1, Slide 2, og svo framvegis.
- Skjár (Screen)
- Sýnir valmynd eins og þá sem sést á myndinni. Báðir þessir kostir láta efnið hverfa og skjárinn verður annað hvort svartur eða hvítur. Þetta getur komið sér vel ef maður vill gera hlé á glærusýningunni eða sýna eitthvað á annarri tölvu.
- Ljúka sýningu (End Show)
- Lýkur sýningunni og snýr aftur í Impress vinnuumhverfið. Þetta virkar eins og að ýta á ESC lykilinn á lyklaborðinu.

