Glærumeistarinn og stílar

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Glærumeistari er ein glæra sem virkar sem einskonar upphafspunktur fyrir glærusýningu. Hann virkar á svipaðan hátt og blaðsíðuformun í Writer, hann stjórnar öllu sem viðkemur grunnformun á glærunum eins og til dæmis stærð, legu, spássíum o.s.frv. Glærusýning getur innihaldið fleiri en einn glærumeistara.

Glærumeistari hefur tilgreint sett eiginda, þar með talið bakgrunnslit, myndir eða röstun; hluti (eins og einkennismerki, skrautlínur og aðra grafík) í bakgrunni; hausa og fætur; staðsetningu og stærð textareita; og formun texta.

Öllum eigindum glærumeistara er stjórnað með stílum. Stílar í nýrri glæru eru allir fengnir frá glærumeistaranum þar sem þeir voru búnir til. Með öðrum orðum, þá eru stílar glærumeistarans til reiðu oft settir á allar glærur sem búnar eru til frá þeim glærumeistara. Ef glærumeistara er breytt, þá breytast allar glærur sem byggðar eru á honum; það er hins vegar hægt að breyta stökum glærum án þess að það hafi áhrif á glærumeistarann.

Glærumeistarar bjóða upp á tvenns konar stílhætti: framsetningarstíla (Presentation Style) og grafíska stíla (Graphic Style). Hægt er að breyta þeim framsetningarstílum sem fylgja, en það er ekki hægt að búa til nýja. Það er hins vegar bæði hægt að breyta þeim grafísku stílum sem fylgja og búa til nýja. Það hvaða stíla er best að nota og hvenær er rætt seinna í þessum kafla.

Framsetningarstílar (Presentation style) hafa áhrif á þrjú grunn atriði í glærumeistara: bakgrunninn, hluti sem koma fram í bakgrunni (t.d. tákn, línur, og textaramma), og texta sem koma fram á glæru. Textastílar eru jafnframt flokkaðir í undirflokka: minnispunkta (Notes), útlínur 1 til 9 (Outline), undirtitla (Subtitles) og titla (Titles).

Grafískir stílar (Graphic styles) hafa áhrif á ýmis atriði á glæru. Athugaðu að textastílar eru til bæði sem framsetning og grafík.

Tenglar