Gamalt Töfluskjal opnað
Úr OpenOffice.is
Hægt er að opna skjal sem þegar er til á tölvunni úr hvaða forriti OOo sem er. Þannig er t.d. hægt að opna Calc skjöl með Writer.
- Með valslánni
- Smelltu á File og veldu Open.
- Með lyklaborðinu
- Með því að gera CTRL+O.
Allar þessar aðferðir birta opnunargluggann, þar finnur þú svo skjalið sem þú vilt opna.
Ráð Einnig er hægt að opna skjöl sem hafa verið notuð nýlega með því að nota listann yfir nýleg skjöl. Þennan lista má finna undir File > Recent Documents. Þessi listi sýnir síðustu tíu skjölin sem unnið hefur verið með í OpenOffice.

