Gagnvirkni notuð

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita
Mynd 21: Talgluggi fyrir gagnvirkni áður er virkni er valin
Mynd22: Talgluggi fyrir gagnvirkni eftir að búið er að velja Go to page or object virknina og hægt er að velja um glærur og hluti

Gagnvirkni er það kallað þegar maður fær að smella á hlut á glæru. Venjulega eru þetta hnappar eða myndir, en hægt er að setja gagnvirkni á textahluti líka. Hugsanleg virkni er meðal annars: fara á síðustu glæru, fara á næstu glæru, fara á fyrstu glæruna, fara á síðustu glæruna, fara á síðu eða hlut (þ.e. tiltekna glæru eða nefndan hlut á glæru), fara á skjal, spila hljóða, eða spila fjölva.

Til að setja gagnvirkni á hlut (eða breyta gagnvirkni sem þegar er á hlut), þá er hægri-smellt á hlutinn og Interaction valið af sprettivalinu. Interaction talglugginn (Mynd 21) kemur þá upp. Gagnvirkni er valin af Action at mouse click fellilistanum.

Í sumum tilfellum þegar maður er búinn að velja gagnvirkni, þá breytist glugginn og býður upp á fleiri möguleika. Til dæmis sést á mynd 22 hvernig glugginn lítur út eftir að búið er að velja Go to page or object.

Ráð
Hægt er að setja inn hljóð með Effect Options talglugganum(Mynd 17).
Tenglar