Gögnum breytt

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Að breyta gögnum í reit er gert að miklu leiti eins og gögn eru sett inn í reit. Fyrsta skrefið er að velja reitinn sem á að breyta.

Efnisyfirlit

Gögnum eytt úr reit

Mynd 1: Delete Contents glugginn

Hægt er að eyða gögnum úr reit á nokkra vegu.

Fjarlægja aðeins gögn

Hægt er að eyða aðeins gögnum úr reit (tölu eða texta) án þess að það hafi áhrif á snið (format) reitsins. Veldu reitinn og ýttu á bakklykilinn á lyklaborðinu.

Að eyða gögnum og formun

Hægt er að eyða gögnum og sniði reits með því að ýta DELETE lykilinn á lyklaborðinu (eða hægri-smella og velja Delete Contents, eða nota Edit > Delete Contents) til að fá upp Delete Contents gluggann (mynd 1). Í þessum glugga er hægt að velja hverju á að eyða. Til að eyða öllu úr reitnum er Delete all valið.

Skipt um gögn í reit

Ef þú þarft að skipta út tölu eða öðrum gögnum í reit er óþarfi að eyða fyrst því sem er í reitnum. Þú einfaldlega velur reitinn og skrifar yfir það sem í honum er. Nýju gögnin halda sniðinu sem var fyrir í reitnum (t.d. ef fyrir er í reitnum tala með tvo aukastafi og þú slærð nýja tölu í reitinn þá verður sú tala líka með tvo aukastafi).

Að breyta hluta gagna í reit

Stundum vill maður breyta innihaldi reits án þess að fórna öllu sem í reitnum er, til dæmis ef leiðrétta þarf innsláttarvillu í texta.

Til að gera þetta þarf að opna viðkomandi reit og setja skrifbendilinn inn í reitinn. Þetta er hægt að gera á tvennan hátt:

Með lyklaborðinu
Veldu reitinn sem þú vilt breyta, ýttu á F2 lykilinn, reiturinn opnast og bendillinn fer aftast í reitinn. Nú getur þú notað örvalyklana eða músina til að færa bendilinn þangað sem þú vilt gera breytingar.
Með músinni
Með músinni er hægt að breyta efni í reit með því að tvísmella á þann reit sem á að breyta. Einnig er hægt að velja reitinn og fara svo upp í formúlustikuna og gera breytingarnar þar.
Tenglar