Gögn sett inn með lyklaborðinu
Úr OpenOffice.is
Allflest gögn sem þarf að koma inn í Calc er hægt að setja inn með lyklaborðinu.
Efnisyfirlit |
Að slá inn tölur
Smelltu á reit og sláðu inn tölu á lyklaborðinu. Til að slá inn neikvæða tölu (mínustölu) slærðu annaðhvort mínusmerki (–) fyrir framan töluna eða setur töluna í sviga, til dæmis: (1234).
Sjálfgefið er að tölur séu hægrijafnaðar (liggi hægra megin í reitnum) og neikvæðar tölur hafi mínusmerki fyrir framan.
Innsláttur texta
Smelltu á reit og sláðu inn texta með lyklaborðinu. Sjálfgefið er að texti sé vinstrijafnaður (liggi vinstra megin í reitnum).
Tölur slegnar inn sem texti
Ef tala er slegin inn á forminu 01481, þá sleppir Calc núllinu sem er fremst. (Undantekning: Sjá ráð hér að neðan). Til að halda þessu núlli er hægt að slá inn úrfellingarmerki fyrir framan núllið. Til að slá inn kennitölu til dæmis '0808685299.
Talan er núna skilgreind sem texti af Calc. Formúlur og föll líta á þetta sem texta þannig að ekki er hægt að nota tölu á textaformi til að reikna.
Ráð Tölur geta haft núll fremst og verið áfram skilgreindar sem tölur (en ekki texti) ef reiturinn er formaður á réttann hátt. Hægri-smelltu á reitinn og veldu Format Cells > Numbers. Stilltu Leading zeros til að bæta við núllum framan við töluna. Leading Zeros stillingin segir í raun til um heildar stafafjölda í tölunni þannig að ef þú vilt hafa töluna 0123 þarftu að stilla Leading Zeros á 4.
Athugaðu Þegar notað er úrfellingarmerki til að fá núll framan við tölu þá hverfur úrfellingarmerkið þegar ýtt er á ENTER og reitnum lokað. Ef stillingin Smart Quotes er virk þá breytir Calc úrfellingarmerkinu í einfalda gæsalöpp sem verður sýnileg.
Til að stilla hvernig OOo meðhöndlar úrfellingarmerkið þarf að athuga stillingar í Tools > AutoCorrect >Custom Quotes. Stillingarnar þarna hafa áhrif bæði á Calc og Writer.
Aðvörun Þegar tala er skilgreind sem texti þarf að passa að hún sé ekki notuð í útreikninga því Calc hundsar reiti með texta við útreikninga.
Að slá inn dagsetningar og tíma
Veldu reitinn og sláðu inn dagsetninguna og tímann. Hægt er að slá inn dagsetningar með skástriki á milli (26/05/09) eða með bandstriki (26–05–09) eða nota texta eins og 26. maí 09. Calc þekkir þónokkrar útfærslur á dagsetningum. Tími er brotinn niður með tvípunkti á milli t.d 14:45:34 (klst:mín:sek).

