Gögn formuð
Úr OpenOffice.is
Hægt er að forma gögn á Calc á ýmsan hátt, formið getur verið hluti af fyrirframskilgreindum stíl eða verið sett á staka reiti handvirkt.
Hægt er að gera sumar formbreytingar beint með hnappastikunni efst, en miklu fleiri möguleika má finna með því að að hægri smella á reitinn og velja Format Cells.
Möguleikarnir eru allir útskýrðir hér á eftir.
Athugaðu Allar stillingarnar sem fjallað er um hér er einnig hægt að nota til að búa til stíla með Styles and Fomatting.
Efnisyfirlit |
Að setja margar línur af texta í einn reit
Hægt er að setja margar línur af texta í einn reit með því að nota annaðhvort sjálfvirka eða handvirka línuskiptingu. Hvor aðferð fyrir sig getur nýst við mismunandi aðstæður.
Sjálfvirk línuskipti
Til að láta textann skipta sér sjálfvirkt milli lína innan reits hægri smellir þú á reitinn og velur Format Cells (eða velur Format > Cells í valslánni, eða ýtir á CTRL+1). Veldu Alignment flipann (mynd 1), og veldu Wrap text automatically undir Properties. Útkomuna má sjá á mynd 2.Handvirk línuskipting
Til að setja línuskiptinguna handvirkt þá ýtir þú á CTRL+ENTER með bendilinn þar sem línan á að skiptast, þessi aðferð virkar bara ef skrifbendillinn er í reitnum, ekki á formúlustikunni. Handvirk línuskipting hefur engin áhrif á breidd reitsins þannig að það getur þurft að stilla hana eftir á.Mynd 3 sýnir reit með tveimur handvirkum línuskiptingum eftir fyrstu línu.
Texti minnkaður svo hann passi í reit
Hægt er að láta Calc breyta stafastærð í reit sjálfvirkt þannig að gögnin í reitnum passi í hann. Þetta er gert með því að velja Shrink to fit cell size stillinguna í Format Cells glugganum (mynd 1). Mynd 4 sýnir þetta.Formun talna
Athugaðu Það er ekki víst að allir þessir hnappar séu sýnilegir og til að gera hnappa sýnilega á stikunni þarf að smella á örina við hægri endann á stikunni, þá kemur valmynd þar þarf að fara í Visible Buttons og velja hvaða hnappar eru sýnilegir.Til að nota önnur form af tölum þarf að fara í Numbers flipann í Format Cells glugganum, þar getur þú:
- Valið gerð gagna í Category listanum.
- Stjórnað fjölda aukastafa og heildarfjölda stafa (Leading zeros).
- Slegið inn kóða fyrir form.
- Valið að hafa neikvæðar tölur rauðar og að hafa punkt milli þúsunda.
Language stillingin breytir formi reits m.t.t. lands. Til dæmis gjaldmiðli og formi á dagsetningu.
Stafagerð breytt
Auðvelt er að velja stafagerð með hnappastikunni. Veldu reitinn eða reitina sem þú vilt breyta og veldu stafagerð úr listanum á hnappastikunni.
Ráð Þú getur valið hvort listinn sýni nöfn stafagerðana með venjulegri stafagerð eða hvort nöfn stafagerðanna sé ritum með hverri stafagerð fyrir sig. Farðu í Tools > Options > OpenOffice.org > View og veldu eða afveldu Show preview of fonts möguleikann.
Stafastærð er hægt að velja á sama hátt með því að velja stafastærð úr listanum á hnappastikunni. Önnur formun sem er á hnappastikunni eru til dæmis Feitletrun, Skáletrun og undirstrikun.
Hægt er að breyta lit á stöfunum með því að smella á örina við hliðina á stafalitahnappnumAð skilgreina tungumál í reit er mjög gagnlegt ef þörf er á að hafa mörg tungumál í sama skjalinu, hvert tungumál er þá villuleitað ef orðabók þess tungumáls er inni. Það er gert í Font flipanum í Format Cells glugganum. Í Font Effects flipanum er hægt að gera nokkrar stillingar í viðbót sem hafa áhrif á útlit stafagerðanna.
Reitarammi formaður
Til að setja ramma utan um reit er einfaldast að setja rammann með Rammahnappnum
og nota svo nota Línugerðar og Línulits hnappana
til að breyta útliti línanna (Það gæti þurft að gera þá sýnilega eins og var lýst í athugasemd í kaflanum formun talna).
Athugaðu Línur í reit eru aðeins bundnar einum reit. Þannig að ef C3 er með línu efst sem lítur þá út alveg eins og reitur C2 sé með línu neðst, þá er samt aðeins hægt að breyta línunni með því að velja reit C3.
Bakgrunni reita breytt
Einfaldast er að breyta bakgrunni reita með Bakgrunnshnappnum
. Litaspjald birtist og hægt að velja bakgrunnslit.
Einnig er hægt að nota Background flipann í Format Cells til að breyta bakgrunninum.

