Formúla slegin inn

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Það eru þrjár aðferðir við að rita inn formúlu í Math:

  • Velja tákn af valglugga
  • Hægri-smella á formúluritilinn og velja tákn af sprettiglugga
  • Rita formúlutexta í formúluritilinn

Valglugginn og felliglugginn rita inn fornmúlutextann í ritilinn þegar þeir eru notaðir. Með því er hægt á auðveldan hátt að læra formúlutextann og hvernig hann er notaður.

Athugaðu
Smelltu í skjalið sjálft til að fara út úr formúluham.
Tvísmelltu á formúlu til að fara aftur í formúluhaminn.

Efnisyfirlit

Valglugginn

Mynd 1: Valglugginn í Math
Einfaldasta aðferðin til að setja inn formúlu er að nota valgluggann, sem sést á mynd 1.

Valglugganum er skipt í tvö svæði.

  • Efra svæðið sýnir flokka tákna. Smelltu á þá til að breyta táknalistanum
  • Neðra svæðið sýnir öll táknin sem til eru í viðkomandi flokki
Ráð
Hægt er að fela eða sýna valgluggann með View >Selection.

Dæmi 1: 5×4

Mynd 2: Reiknitákn valin
Í þessu dæmi ætlum við að búa til einfalda formúlu: 5×4 . Í valglugganum:
  1. veldu hnappinn efst til vinstri (sjá mynd 2).
  2. smelltu á margföldunartáknið eins og sýnt er.

Þegar þú velur margföldun úr Valglugganum gerist tvennt:

  • Formúluritillinn sýnir formúlutextann: <?> times <?>
  • Formúluhamurinn sýnir tvo gráa kassa með marföldunartákni á milli: Mynd:Math-tveir-grair-kassar.jpg
Mynd 3: Fimm sinnum fjórir
„<?>“ táknin eru pláss þar sem maður getur sett texta. Formúlan uppfærist jafn óðum og þegar maður er búinn að rita tölurna 5 og 4, þá ætti formúlan að líta út eins og á mynd 3:


Ráð
Ef þú vilt ekki að formúla uppfærist sjálfkrafa þá getur þú valið
View >AutoUpdate display.
Til að uppfæra síðan formúluna er nóga að ýta á F9 lykilinn á lyklaborðinu
eða velja View > Update.

Hægri-smellur

Mynd 4: Hægri-smellt til að sækja reiknitákn
Önnur aðferð til að sækja reiknitákn er að hægri-smella á formúluritilin. Við það opnast valmynd eins og sést á mynd 4.
Athugaðu
Atriðin í þessu glugga eru nákvæmlega þau sömu og í valglugganum.

Ritun formúlutexta

Hægt er að rita formúlutextann beint í formúluritilinn. Til dæmis er hægt að rita „5 times 4“ til að fá formúluna 5×4 . Ef maður kann þennan texta, þá er þetta fljótlegasta aðferðin til að búa til formúlu.

Ráð
Það gæti hugsanlega hjálpað að muna að formúlutextinn hljómar eins
og formúla sem er lesin upp á ensku.

Hér fyrir neðan er stuttur listi yfir algengar formúlur og hvernig þær eru ritaðar.

Mynd:Math-tafla.jpg

Grísk tákn

Grísk tákn (Mynd:Math-grisk-takn.jpg o.s.frv.) eru algeng í stærðfræðiformúlum. Þessi tákn er ekki að finna í valkassanum eða valmyndinni þegar maður hægri-smellir. Sem betur fer er auðvelt að setja þau inn: Maður ritar prósentutáknið (%) og síðan nafn táknsins á ensku.

  • Til að fá grískt tákn í lágstöfum er nafn hans ritað í slágstöfum
  • Til að fá grískt tákn í hástöfum er nafn hans ritað í hástöfum

Í þessari töflu eru nokkur dæmi:

Mynd:Math-tafla-grisk.jpg

Mynd 5: Grískt tákn sett inn
Önnur aðferð til að fá grísk tákn er að nota Catalog gluggann. Veldu Tools > Catalog. Þá opnast Catalog glugginn eins og hann er sýndur á mynd 5. Veldu Greek í Symbol Set reitnum og tvísmelltu á grískt tákn í listanum.

Dæmi 2: π ≃ 3,14159

Í þessu dæmi ætlum við að gefa okkur að:

  • við viljum rita inn formúluna hér fyrir ofan (tölugildi fyrir pí upp á fimm aukastafi)
  • við vitum hvað gríska táknið heitir (pi)
  • en að við vitum ekki hvernig á að fá ≃ táknið.
Mynd 6: einföld formúla rituð inn
Skref 1: Ritaðu „%“ og síðan nafnið pi . Þetta sýnir gríska stafinn π.

Skref 2: Opnaðu valgluggann (View > Selection).

Skref 3: ≃ táknið er samband (relation), svo við smellum á sambandshnappinn . Ef þú lætur bendilinn voka yfir táknunum, þá sérðu hvað þau heita.

Skref 4: Eyddu úr fremri <?> textanum og tvísmelltu á þann seinni. Þar getur þú ritað 3,14159. Nú erum við komin með textann %pi simeq 3,14159 í ritilinn og formúluna fyrir ofan:

Tenglar