Ferðast um töfluskjöl

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Efnisyfirlit

Að fara á tiltekinn reit

Með músinni

Smellu á þann reit sem þú vilt fara í.

Með tilvísun í reit

Smelltu á örina hægra megin við nafnreitinn. Tilvísunin sem er í reitnum ljómast. Ritaðu nafnið á reitnum sem þú vilt fara í og ýttu á ENTER á lyklaborðinu. Eins er hægt að smella beint í nafnreitinn og eyða tilvísuninni sem þar er og skrifa nýja.

Mynd 1: Lóðsinn í Calc

Að nota Lóðsinn

Smelltu á Lóðshnappinn Lóðs á hnappastikunni (eða ýttu á F5) til að opna Lóðsinn. Sláðu tilvísun í reit í textareitina efst í Lóðs glugganum og ýttu á ENTER. Á mynd 1 er reiturinn G28 valinn.

Farið af einum reit á annan.

[[Mynd:|thumb|right|Mynd 2: Einn reitur valinn (vinstri) og margir reitir valdir (hægri)]]Í töfluskjalinu er einn reitur með svartan ramma. Þessi svarti rammi þýðir að viðkomandi reitur hefur fókus, (sjá mynd 2). Einnig geta margir reitir verið valdir í einu eins og sést á mynd 2.

Með músinni

Til að færa fókusinn með músinni er einfaldlega smellt á reit og við það fer fókusinn á þann reit. Þessi aðferð virkar ágætlega þegar langt er milli reitanna.

Með TAB og ENTER lyklunum

  • ENTER lykillinn færir fókusinn niður um eina línu og SHIFT+ENTER færir hann upp um eina línu.
  • TAB lykillinn færir fókusinn ein dálk til hægri og SHIFT+TAB færir hann einn dálk til vinstri.

Virkni ENTER lykilsins breytt

Mynd 3: Virkni ENTER lykilsins breytt
Hægt er að breyta því í hvaða átt ENTER lykillinn færir fókusinn með því að fara í Tools > Options > OpenOffice.org Calc > General.

Möguleikarnir fjórir sjást hægra megin á mynd 3. Það getur farið eftir því hvernig gögn verið er að vinna með hvaða átt hentar best.

Einnig er hægt að nota ENTER lykilinn til að fara í og úr breytingarham (Press Enter to switch to edit mode). Það virkar þannig að þegar fókusinn er á reit sem eitthvað er í og ýtt er á ENTER þá færist fókusinn ekki heldur opnast reiturinn þannig að hægt er að breyta því sem í honum er (þetta er venjulega gert með því að tvísmella á reitinn eða með því að ýta á F2 lykilinn).

Með örvalyklunum

Örvalyklarnir færa fókusinn í þá átt sem örin á lyklinum bendir.

Með HOME, END, PAGE UP og PAGE DOWN lyklunum

  • HOME lykilinn færir fókusinn fremst í línu.
  • END lykillinn færir fókusinn á þann dálk sem er lengst til hægri og inniheldur gögn.
  • PAGE DOWN lykillinn færir fókusinn niður um heila síðu
  • PAGE UP lykillinn færir fókusinn upp um heila síðu.
  • Ef notaðir eru CTRL eða ALT lyklarnir með fyrrgreindum lyklum breytist virkni þeirra.
Ráð
Alt+örvalykill breytir stærð reita.

Farið af einni töflu á aðra

Mynd 4: Örvahnappar fyrir blaðflipa
Blöðin í töfluskjalinu eru óháð hvert öðru þó hægt sé að tengja þau saman. Það eru þrjár leiðir til að skipta milli blaða í töfluskjalinu:

Með lyklaborðinu CONTROL+PAGE DOWN birtir næsta blað hægra megin og CONTROL+PAGE UP birtir næsta blað vinstra megin.

Með músinni

Með því að smella á blaðflipana neðst á skjánum birtist það blað.

Ef mörg blöð eru í skjalinu er ekki víst að allir fliparnir séu sýnilegir. Ef þetta gerist eru fjórir hnappar vinstra megin við flipana til að færa þá til. Mynd 4 sýnir þessa hnappa

Taktu eftir að fliparnir þurfa ekkert endilega að vera númeraðir í réttri röð og einnig er hægt að nefna flipana hvað sem er.

Athugaðu
Örvahnapparnir eru ekki virkir nema að einhverjir flipar séu ekki sýnilegir.
Ef ekki þá eru þeir óvirkir og gráir.