Eldra skjal opnað
Úr OpenOffice.is
Þegar ekkert skjal er opið, þá er táknmynd á opnunarglugganum sem smella má á til að opna eldra skjal.
Það er líka hægt að opna eldra skjal á eftirfarandi hátt. Ef skjal er opið í OOo, þá opnast skjalið í nýjum glugga.
- Veldu File > Open.
- Smelltu á Open hnappinn á aðal hnappastikunni.
- Ýttu á CTRL+O lyklana á lyklaborðinu.
Í öllum tilfellum opnast Open talglugginn. Veldu skjalið sem þú vilt sjá og smelltu á Open.
Í Open talglugganum getur þú minnkað listann yfir möguleg skjöl með því að velja skjalgerð þess skjals sem þú ert að leita að. Til dæmis, ef þú velur Text documents sem þá skjalgerð sem þú vilt fá, þá sérðu bara skjöl sem Writer getur opnað (þar með talin .odt, .doc, .txt). Ef þú velur Spreadsheets, þá sérðu .ods, .xsl, og önnur skjöl sem Calc getur opnað.
Þú getur einnig opnað skjöl sem eru á OpenDocument formi með því að tvísmella á táknmynd skjalsins í skjalstjóra eins og Windows Explorer.
Ef þú hefur tengt Microsoft Office skjalform við OOo, þá getur þú einnig opnað þau skjöl með því að tvísmella á þau.
Athugaðu: Ef þú ert með Microsoft Windows, þá getur þú annað hvort notað OOo Open og Save As talgluggana eða þá sem fylgja með Microsoft Windows. Skoðaðu frekari upplýsingar í kaflanum „Open og Save As talgluggarnir“.

