Efnisyfirlit búið til
Úr OpenOffice.is
OpenOffice.org Writer leyfir þér að búa til sjálfvirkt efnisyfirlit sem er tengt fyrirsögnum í texta. Áður en þú byrjar, þá skaltu vera viss um að allar fyrirsagnir í texta séu formaður á sama hátt og til þess notaðir stílar. Til dæmis, þá getur þú notað Heading 1 fyrir kaflaheiti, Heading 2 og Heading 3 fyrir undirheiti á köflum.
Þótt hægt sé að breyta efnisyfirlitinu mikið í Writer, þá er einfaldast að nota sjálfvaldar stillingar. Að búa til lítið efnisyfirlit er einfalt:
- Þegar þú býrð til skjalið þitt, þá skaltu nota eftirfarandi stíla fyrir mismunandi titla (eins og til dæmis kaflaheiti og undirheiti): Heading 1, Heading 2, og Heading 3. Þetta mun síðan birtast í efnisyfirlitinu. Þú getur notað fleiri stíla fyrir mismunandi heiti en sjálfvaldar stillingarnar eru fyrir fyrstu þrjú stigin.
- Settu ritbendilinn þar sem þú vilt að efnisyfirlitið birtist.
- Veldu Insert > Indexes and Tables > Indexes and Tables.
- Ekki breyta neinu í Insert Index/Table glugganum. Smelltu á Ok
Ef þú bætir við eða eyðir texta (þannig að titlaheiti færast um blaðsíðu) eða breytir sjálfum titlaheitunum/kaflaheitunum þá þarftu að uppfæra efnisyfirlitið. Til að gera þetta:
- Settu ritbendilinn í efnisyfirlitið.
- Hægri-smelltu og veldu Update Index/Table í valmyndinni sem birtist.
Athugaðu Ef þú getur ekki sett ritbendilinn í efnisyfirlitið, veldu Tools > Options > Openoffice.org Writer > Formatting Aids, og síðan velurðu Enable í Cursor in protected areas hlutanum.
Þú getur breytt efnisyfirliti hvenær sem er. Hægri-smelltu hvar sem er á það og veldu Edit Index/Table í valmyndinni sem birtist.

