Breytingar merktar í skjali
Úr OpenOffice.is
Það eru til nokkrar aðferðir við að fylgjast með breytingum sem gerðar eru á ritvinnsluskjali:
- Gerðu þínar breytingar á afriti af upprunalegu ritvinnsluskjali (vistað í annarri möppu, undir öðru nafni eða bæði), notaðu síðan Writer til að sameina bæði ritvinnsluskjölin og sýna breytingarnar sem hafa verið gerðar. Smelltu á Edit > Compare Document. Þessi aðferð er mjög gagnleg ef þú ert einn um að breyta ritvinnsluskjalinu því að þetta kemur í veg fyrir að skjalið sé stærra og þessi aðferð er sú einfaldasta.
- Vistaðu útgáfurnar sem eru geymdar sem hlutar af upprunalega ritvinnsluskjalinu. Þessi aðferð getur valdið vandamálum ef skjölin eru mjög lítil, sérstaklega ef þú ert að vista fleiri en tvær útgáfur.
- Þegar búið er að breyta skjali þá getur þú smellt á Edit > Changes > Record til að sjá breytingar og þú getur einnig samþykkt eða hafnað breytingum.
Ráð Ekki er hægt að sjá allar breytingar. Til dæmis eru breytingar á dálksetningu úr hægri jöfnun í vinstri jöfnum, eða breytingar í formúlum og tengdum myndum ekki skráðar.

