Atriðum raðað

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Röðun raðar sýnilegum reitum í töflu. Í Calc er hægt að raða eftir allt að þremur þáttum þar sem þættirnir eru skoðaðir hver á eftir öðrum. Röðun er mjög þægileg þegar verið er að leita að einhverju ákveðnu og nýtist jafnvel enn betur eftir að gögnin hafa verið síuð líka.

Röðun getur líka verið þægileg þegar gögnum er bætt inn í töflu. Ef taflan er mjög löng þá er einfaldara að bæta neðst í hana, frekar en að setja nýjar línur inn í hana á réttum stöðum. Þá er hægt að bæta nýjum gögnum neðst og raða svo töflunni aftur.

Hægt er að raða með því að velja þá reiti sem á að raða og velja svo Data > Sort. Reitunum sem valdir eru er hægt að raða eftir innihaldi þeirra annað hvort í vaxandi röð (A-Ö, 1-9) eða í fallandi röð (Ö-A, 9-1).

Í Options flipanum í röðunarglugganum er hægt að breyta eftirfarandi:

Taka tillit til hástafa (Case sensitive)
Ef tveir reitir innihalda það sama nema annað er skrifað með hástaf, þá er reiturinn með hástafnum á undan.
Valdir reitir innihalda fyrirsögn (Range contains column labels)
Raðar ekki fyrirsögnum dálkanna með.
Formun reitsins færist með (Include formats)
Form reitsins færist með þegar honum er raðað. Ef ákveðnar tölur eru til dæmis auðkenndar með rauðum stöfum þá þarf að velja þetta svo að þeir verði áfram rauðir.
Afrita röðun til (Copy sort results to)
Hér er hægt að taka fram stað í skjalinu sem taflan aftritast á þegar henni er raðað. Ef reitirnir sem er vísað í eru ekki nógu margir þá er reitum bætt við, sem þýðir að það er nóg að tiltaka fyrsta reit.
Nota þín eigin röð (Custom sort order)
ÞVeldu þennan reit og veldu svo eitthvað af þeim röðum sem skilgreindar eru í Tools > Options > Spreadsheet > Sort Lists í listanum. Þetta nýtist til dæmis ef raða þarf mánuðum eða dögum í rétt röð.
Átt (Direction)
Stillir hvort raðað er eftir dálkum eða línum, stillir hvort línum eða dálkum er raðað, sjálfgefið er að línum sé raðað.
Tenglar