Atriði í töflu eða töfluskjali valin
Úr OpenOffice.is
Efnisyfirlit |
Að velja reiti
Reiti er hægt að velja með nokkrum aðferðum:
Velja einn reit
Smelltu á reitinn sem á að velja. Það ætti að líta út eins og vinstri hluti myndar 74. Þú getur staðfest valið með því að skoða nafnreitinn
Að velja marga samliggjandi reiti
Hægt er að velja samliggjandi reiti með lyklaborðinu eða músinni.
Að velja samliggjandi reiti með því að draga með músinni:
- Smelltu á reit.
- Haltu niðri vinstri músarhnappnum.
- Hreyfðu músina.
- Þegar réttu reitirnir hafa verið valdir er músarhnappnum sleppt.
Að velja samliggjandi reiti með músinni án þess að draga:
- Smelltu á reit sem á að vera í horni svæðisins sem á að velja
- Finndu það horn sem á að vera á móti horninu sem upphaflega var valið.
- Haltu niðri SHIFT hnappnum og smelltu á þann reit.
Að velja samliggjandi reiti án þess að nota músina:
- Farðu á reit sem á að vera í einu horni svæðisins sem á að velja.
- Haltu niðri SHIFT lyklinum og notaðu örvalyklana til að velja afganginn af svæðinu
Allar þessar aðferðir velja marga samliggjandi reiti.
Ráð Þú getur líka valið hóp af reitum með nafnreitnum. Farðu í nafnreitinn og sláðu inn tilvísun í reitinn sem á að vera í efra horninu vinstra megin á svæðinu sem á að velja og svo tilvísun í neðra hornið hægra megin og tvípunktur (:) á milli. Til dæmis ef velja á svæðið frá A3 til C6 myndir þú slá inn A3:C6.
Að velja hóp af reitum sem ekki liggja saman
- Veldu einn eða fleiri reiti með einhverjum af þeim aðferðum sem lýst er hér að ofan.
- Færðu músarbendilinn þangað sem þú vilt velja næsta hóp af reitum
- Haltu niðri CTRL lyklinum og smelltu til að velja einn reit eða smelltu og dragðu til að velja marga reiti.
- Endurtakist eftir þörfum.
Að velja línur eða dálka
Hægt er að velja heilan dálk eða línu í Calc á mjög einfaldan hátt.
Að velja einn dálk eða línu
Til að velja einn dálk smelltu þá á dálkahaus viðkomandi dálks (sjá mynd 68).
Til að velja eina línu smelltu þá á línuhaus viðkomandi línu
Að velja margar línur eða marga dálka
Að velja margar línur eða dálka sem eru samliggjandi:
- Smelltu á haus fyrsta dálksins eða línunnar sem á að velja.
- Haltu niðri SHIFT hnappnum.
- Smelltu á haus síðasta dálksins eða línunnar sem á að velja.
Að velja dálka eða línur sem ekki liggja saman:
- Smelltu á haus fyrsta dálksins eða línunnar sem á að velja.
- Haltu niðri CTRL hnappnum.
- Smelltu á hausa þeirra dálka eða lína sem á að velja til viðbótar.
Að velja heila töflu
Hægt er að velja alla töfluna með því að smella á reitinn uppi í vinstra horninu á milli hausana á dálk A og línu 1 (Sjá mynd 1).Einnig er hægt að velja alla töfluna með lyklaborðinu með því að ýta á lyklana CTRL+A.
Að velja blöð
Þú getur valið eitt eða fleiri blöð. Það getur verið gott að geta valið mörg blöð ef breyta þarf stillingum á mörgum blöðum, þá er hægt að gera það við þau öll í einu.
Eitt blað
Smelltu á flipa þess blaðs sem þú vilt velja. Flipi blaðsins sem er valið verður hvítur.
Mörg samliggjandi blöð
Að velja mörg samliggjandi blöð:
- Smelltu á flipa fyrsta blaðsins sem þú vilt velja.
- Færðu músarbendilinn yfir síðasta flipann.
- Haltu niðri SHIFT lyklinum og smelltu á síðasta flipann.
Öll blöðin milli þessara tveggja verða hvít og þú getur breytt stillingum fyrir öll þessi blöð í einu.
Mörg blöð sem ekki liggja saman.
Að velja mörg blöð sem ekki liggja saman:
- Smelltu á flipa fyrsta blaðsins sem þú vilt velja.
- Færðu músarbendilinn yfir næsta flipa sem þú vilt velja.
- Haltu niðri CTRL lyklinum og smelltu á þann flipa.
- Endurtakist eftir þörfum.
Valin blöð verða hvít og þú getur breytt stillingum fyrir öll þessi blöð í einu..
Öll blöð
Hægri smelltu með músinni á einhvern blaðflipa og veldu Select All Sheets úr valmyndinni sem birtist.

