Aðferðir við samsetningu formúla
Úr OpenOffice.is
Það er ýmislegt sem hafa þarf í huga þegar fomúla er sett saman. Þegar þú byrjar, þá þarftu að velta fyrir þér hversu margir munu nota töflublaðið, hvernig blaðið verður notað og hvaða áhrif mismunandi notkun kemur til með að hafa.
Settu sértæka formúlu í hvern reit
Fyrsta og einfaldasta stefnan er að skoða hvaða formúlur mega vera einfaldar og takmarkaðar. Aðferðin er þá að setja slíkar formúlur hverja í sinn reit.
Skiptu formúlum upp í hluta og sameinaðu hlutana
Önnur stefnan er svipuð, nema nú brýtur maður lengri og flóknari formúlur upp í minni hluta og sameinar síðan þessa einföldu hluti í eina heild.Þegar flóknar formúlur eru settar upp, þá er hægt að velja Insert > Object > Formula til að opna autt vinnusvæði neðst í glugganum, aðskilið frá töflublaðinu. Þetta svæði virkar eins og formúlusmíði í OOo Math. Í Calc opnast einnig lítill fljótandi gluggi sem sýnir algeng stærðfræðitákn. Ef þessi gluggi er ekki opinn, þá má opna hann með View > Selection.
Á neðra svæðinu er líka hægt að hægri-smella og fá þar aðra aðferð við að setja inn stærðfræðitákn. Myndin 1 sýnir þessar aðferðir. Hægt er að lesa nánar um Math forritið í skjalinu Getting Started with Math á vef OOo.
Notaðu Basic ritilinn til að búa til föll
Þriðja stefnan sem hægt er að taka er að nota Basic fjölvaritilinn og búa til þín eigin föll. Þetta væri gert þar sem slíkt fall einfaldaði notkun þriðja aðila á töflu og fækkaði mögulegum villum. Þetta getur líka gert viðhald á töflu einfaldara. Samsetningu og notkun á fjölvum er nánar lýst í ritinu Calc Macros, sem finna má á vef OOo.

