Þrívíddarmyndrit
Úr OpenOffice.is
Notaðu Format > 3D view til að fínstilla þrívíð myndrit. Í þrívíddarglugganum eru þrír flipar þar sem hægt er að breyta sjónarhorni myndritsins, hvort útlitið er stílfært eða raunverulegt og hvaðan lýsingin kemur, sem stýrir því hvar skuggarnir falla.
Efnisyfirlit |
Snúningur og sjónarhorn
Til að snúa þrívíðu myndriti eða skoða það frá öðru sjónarhorni, setur maður inn viðkomandi gildi á Perspective flipann á þrívíddarglugganum (sjá mynd 1). Einnig er hægt að snúa myndritun gagnvirkt.Nokkur ráð við notkun á Perspective flipanum:
- Stilltu öll horn á 0 til að sjá beint framan á myndritið. Kökurit og kleinuhringir eru sýnd hringlaga.
- Ef hakað er við Right-angled axes þá getur þú bara snúið myndritinu um X og Y, samsíða ramma myndritsins.
- Ef x er 90 og y og z eru 0, þá er horft beint ofanfrá og niður á myndritið. Ef x er –90, þá er horft undir það.
- Snúningurinn er settur í röðinni x fyrst, síðan y og loks z.
- Þegar skygging er á og mynd er snúið, þá snýst ljósgjafinn með eins og hann væri festur við myndritið.
- Snúningsásarnir eiga við síðuna, ekki ásana á myndritinu. Það er öndvert við sum önnur myndritsforrit.
- Hakaðu við Perspective kostinn til að sjá myndina í fjarvídd eins og í gegnum myndavélarlinsu frekar en samsíða. Stilltu fókuslengdina með örvahnöppunum eða ritaðu tölu í reitinn. Ef fjarvídd er stillt á 100%, þá er fjarlægari endi myndritsins um það bil helmingur af hæð nærendans.
Útlit
Notaðu Appearance flipann (sjá mynd 2) til að aðlaga sum atriði í þrívíddinni.Veldu útlit í fellilistanum. Þegar það er gert, þá eru breytingar gerðar á lýsingunni um leið. Ef þú merkir og sleppir samblandi af stillingum sem ekki falla undir Einfalt eða Raunverulegt útlit, þá er búið til nýtt útlit sem fær nafnið Custom, eða tilbúið.
Hakaðu við Shading til að nota Gouraud aðferðina við að lita yfirborð, en annars er flatur litur notaður. Flata aðferðin setur einn lit og birtu á hvern flöt margflötungs. Brúnirnar eru sýnilegar, litablöndun og mismunandi lýsing er ekki fyrir hendi. Gouraud aðferðin setur litablöndu á fletina þannig að allt verður mýkra og raunverulegra.
Hakaðu við Object Borders svo að strik sjáist á öllum brúnum.
Hakaðu við Rounded Edges til að rúnna brúnirnar á kössum. Í sumum tilfellum er þessi kostur ekki fyrir hendi.
Lýsing
Notaðu Illumination flipann (sjá mynd 3) til að stilla staðsetningu ljósgjafa í þrívídd.Smelltu á einhvern af hnöppunum átta til að kveikja eða slökkva á ljósi. Sjálfgefið er að annað ljós frá hægri er á. Það er fyrsta jafna ljósið af sjö. Fyrsti hnappurinn kveikir á ójöfnu ljósi með áherslupunktum.
Þegar búið er að velja ljósgjafa, þá er hægt að stilla lit og styrk í flettilistanum undir hnöppunum átta. Ljósstyrkur eykst eftir því sem fleiri ljós eru notuð og því er gott að nota dökka liti með mörgum perum.
Litla sýnishornið á flipanum hefur tvær skrunrendur sem renna ljósinu upp og niður, fram og til baka. Ljósið lýsir alltaf inn að miðju hlutarins.
Hnappurinn í horninu á milli skrunrandanna breytir dæminu úr kúlu í kubb.
Notaðu umhverfisljós (Ambient light) til að skilgreina lit á birtu í kringum hlutinn. Það hefur sama styrk úr öllum áttum.
Myndritum í þrívídd snúið gangvirkt
Auk þess að nota Perspective flipann í 3D glugganum til að snúa þrívíðum myndritum, þá er líka hægt að snúa þeim gagnvirkt.
Smelltu á vegg myndritsins og síðan, þegar músarbendillinn breytist úr ör í hring, þá getur þú tekið í myndritið og snúið því. Brotalína af útlínum myndritsins sýnir hversu mikið er búið að snúa því. Slepptu músinni til að sjá breytingarnar.

