Þýðingar á hugtökum
Úr OpenOffice.is
Hér á að safna saman helstu hugtökum sem notuð eru í OpenOffice.org og þýðingum þeirra.
Tenglar á aðra orðalista og orðasöfn eru neðst á síðunni um OOo á íslensku.
Efnisyfirlit |
Vinnusvæði Openoffice.org forrita
Þau fyrirbæri sem koma fyrir í og á aðalglugga forritanna.
- Main toolbar --> Aðalvalstika
- Aðal hnappastika
- Menubar / main menu --> Valstika / Aðal valstika --Gaui 27. maí 2009 kl. 15:33 (UTC)
- Menu --> Valmynd, hér að ofan ætti Main Menu að vera --> Aðalvalmynd --Sveinn í Felli 27. maí 2009 kl. 15:59 (UTC)
- Toolbar --> Hnappastika* - Valstika*
- Button --> Hnappur
- Main window --> Vinnusvæði
- Page view --> Síðusýn - Síðuskoðun
- Menu --> Valmynd (áfastur) - Valgluggi (stakur)
- Context help --> Samhengishjálp
- Beamer --> Gagnabeinir eða bara Gagnagluggi. Er notað þegar Base er opnað í hinum forritunum, t.d. við MailMerge póstbræðing.
Valmyndir
Þau fyrirbæri sem koma fyrir í og á valmyndum forritanna.
- Cut --> Klippa
- Copy --> Afrita
- Paste --> Líma
- Paste Special --> Sérhæfð líming
- Print preview --> Prentforsýn
Valgluggar
Þau fyrirbæri sem koma fyrir í og á valgluggum forritanna.
- Location --> Staðsetning
- Filter --> Sía
- Regular expression --> Regluleg segð
Aðgerðir
Aðgerðir sem eru notaðar í forritunum
- Customize --> Sérsníða
Fyrirbæri
Nöfn ýmissa fyrirbæra sem koma fyrir í viðmótinu.
- Eitthvað sem notandinn setur gögn í: Reitur
- Eitthvað sem segir notandanum eitthvað en er ekki inntak: Vísir
- Eitthvað sem notandinn setur inn í skjal og birtir niðurstöðu úr reit eða öðrum gögnum: Svið/Gagnareitur
- Cell --> Reitur (í töflum/töflureiknum)
- Field --> Reitur/Gagnareitur/Svið/Svæði
- Box --> Rammi/Reitur/Kassi
- Control --> Stýring/Gagnastýring
- Button --> Hnappur
- Radio Button/Option button --> Einvalsreitur, reitur sem ýtt er á, sýnir slökkt/kveikt (af/á)
- valhnappur --Gaui 27. maí 2009 kl. 13:55 (UTC)
- Check Box --> Gátreitur/Hakreitur, reitur sem hakað er í (virkt/óvirkt)
- Combo Box --> Fjölvalsreitur
- Drop-down Box --> Fellilisti
- Spin Button --> Snúningshnappur
- Currency Field --> Gjaldmiðlareitur
- Date Field --> Dagsetningareitur
- Text Box --> Textareitur
- File Selection --> Skráavalsreitur
- Label Field --> Svæðistitill ??
- Label: Texti, textavísir (vafasamt). Stundum er hægt að nota "skýring" fyrir "Label", en stundum geta "Merking" eða jafnvel "Fyrirsögn" verið nær lagi.
- Formatted Field --> Forsniðinn (gagna)reitur
- Group Box --> Hóprammi/Stýringahópur
- Image Button --> Myndhnappur
- Image Control --> Myndstýring
- List Box --> Listareitur
- Navigation Bar --> Leiðarstýrislá/Stýringaslá
- Numerical Field --> Tölusvið
- Pattern Field --> Mynstursvið
- Time Field --> Tímareitur/Tímasvið
- Scrollbar --> Skrunslá/Skrunrein/Rennislá
- Slider --> Sleði
- Progress bar --> Framvinduvísir/Framvinduslá
- Statusbar --> Stöðuslá/Stöðustika (notað nokkuð jafnhliða)
- Status indicator --> Stöðuvísir
Hugtök varðandi skjöl
Allt það sem hefur ekki með forritin sjálf að gera heldur skjölin sem búin eru til með forritunum.
- Index --> Efnisyfirlit, Atriðaskrá
- Bitmap --> Bitamynd
- Vector graphic --> Línuteikning, Vektorteikning
Tillögur óskast
Hér er safnað "vafaatriðum", orðum sem menn eru ekki vissir á hvernig á að þýða, "skrýtnar" þýðingar frá öðrum eða ef ósamræmi er í þýðingum. Ný atriði ætti að setja neðst. Öllum er heimilt að gera athugasemdir við þessi atriði; það ætti að gera með stigvaxandi inndrætti (amk tvær ** á undan línu með athugasemd. Í lok athugasemdar ætti að setja merkið sitt (annar hnappur frá hægri á breytingastikunni).
Þeir sem vilja taka af skarið og negla niður "rétta" þýðingu eru beðnir að afrita línuna upp í viðeigandi flokk hér fyrir ofan, án athugasemda en setja stjörnu* aftan við þýðinguna til að sýna að hún eigi sér forsögu hér niðri.
- Document format --> skjalasnið - skjalform
- skjalasnið rímar við skráarsnið og sniðmát sem sumir vilja kalla forsnið --Sveinn í Felli 12. maí 2009 kl. 14:37 (UTC)
- Má hafa í eintölu (og er þjálla þannig): Skjalsnið --Gaui 29. maí 2009 kl. 09:06 (UTC)
- Toolbar --> Hnappastika - Valstika
- (stika eða slá, um þetta hefur verið þrefað lengi --Sveinn í Felli 12. maí 2009 kl. 14:37 (UTC))
- fært upp í "Vinnusvæði" --Sveinn í Felli 12. maí 2009 kl. 14:45 (UTC)
- (stika eða slá, um þetta hefur verið þrefað lengi --Sveinn í Felli 12. maí 2009 kl. 14:37 (UTC))
- Focus --> Virkni, Fókus
- Reitur er gerður virkur með því að færa fókusinn á hann
- Navigator --> Lóðs, leiðarstýring
- Guðjón Ólafs á þetta fanst það bara svo helv... gott. --Gunnar Möller 26. maí 2009 kl. 12:48 (UTC)
- Flott orð - en skilur almennur notandi það (sem aldrei hefur rennt færi af bryggju)? --Sveinn í Felli 27. maí 2009 kl. 16:05 (UTC)
- Leiðarstýring hefur verið notað á nokkrum stöðum; svolítið stirt.--Sveinn í Felli 23. október 2009 kl. 12:13 (UTC)
- Það má benda á að táknmyndin fyrir Lóðs/Navigator er áttaviti !! --Gaui 29. maí 2009 kl. 13:03 (UTC)
- Arrangement --> Röðun
- er það kallað þegar myndum er raðað á ímyndaðan ás sem liggur út úr skjánum. Röðun stjórnar því hvernig myndir raðast hver fyrir framan aðra eða miða við textann. --Gaui 27. maí 2009 kl. 14:00 (UTC)
- Alignment --> Jöfnun, Afstilling
- er það kallað þegar myndum er stillt upp lárétt eða lóðrétt á blaðið miðað við festipunktinn.--Gaui 27. maí 2009 kl. 14:00 (UTC)
- Alignment hefur líka verið kallað Jöfnun
- Anchoring --> Festing
- er tilvísunarpunkturinn fyrir myndina. Þessi punktur getur verið öll síðan eða ramminn sem myndin er í, efnigrein, eða jafnvel tákn.--Gaui 27. maí 2009 kl. 14:00 (UTC)
- Anchor hefur verið þýtt sem Markstikla - ferlega ógegnsætt.--Sveinn í Felli 23. október 2009 kl. 12:13 (UTC)
- Wrapping --> Textaskrið, Textaflæði, flæði
- er notað um samband myndarinnar við textann í kringum hana, sem getur flætt í kring um hana, hvort sem er öðru megin eða báðum megin, horfið á bakvið hana, eða komið fram fyrir hana, eða jafnvel tekið myndina sem sértakt tákn.--Gaui 27. maí 2009 kl. 14:00 (UTC)
- Help Agent --> Hjálparhella --Gaui 28. maí 2009 kl. 13:19 (UTC)
- Quickstarter --> Flýtiræsir
- Hérna er orð sem vantar eitthvað smellið á. Flýtiræsir er svona la-la. Það má finna betra --Gaui 29. maí 2009 kl. 11:09 (UTC)
- Outline --> Efnisskipan í textasamhengi, Útlína í teikningum og leturfræðum.--Sveinn í Felli 23. október 2009 kl. 12:13 (UTC)

